Annata kaupir breskt hugbúnaðarfyrirtæki Sæunn Gísladóttir skrifar 13. júní 2017 15:43 Sigurður Hilmarsson, forstjóri Annata. Mynd/Annata
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Annata hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í breska hugbúnaðarfyrirtækinu IBRL Ltd. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Annata í Bretlandi og nýta þekkingu starfsmanna IBRL til enn frekari sóknar frá skrifstofum félagsins í Manchester og Portsmouth segir í tilkynningu. Starfsmenn sameinaðs félags verða 170 talsins á 15 skrifstofum í 12 löndum, og sinna þeir viðskiptavinum sem er að finna í yfir 50 löndum víðsvegar um heiminn. Annata og IBRL munu á næstu mánuðum sameina starfsemi sína undir nafni Annata og verður skrifstofa Annata í Bretlandi sameinuð skrifstofu IBRL í Portsmouth. Starfsmenn fyrirtækisins í Bretlandi verða um 35, en auk þess mun það hafa fjölda verktaka á sínum snærum. Fjárfestingin er liður í uppbyggingu Annata sem alþjóðlegs hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtækis. Eigendur og stjórnendur félagsins hyggja á frekari landvinninga á komandi misserum og stefnt er að því að fjöldi starfsmanna nálgist 200 í árslok. Rekstur félagsins hefur verið jákvæður og stöðugur frá stofnun árið 2001 en með aukinni áherslu á þróun viðskiptahugbúnaðar og útflutning sem hófst árið 2005 hefur vaxtarhraðinn aukist. „Erlend starfsemi Annata byggir á þróun og sölu viðskiptahugbúnaðar fyrir framleiðendur bíla og vinnuvéla og fyrirtækja sem sinna dreifingar-, sölu- og þjónustustarfsemi í sama iðnaði. Yfir 70% tekna Annata eiga uppruna sinn erlendis og mun það hlutfall hækka á komandi árum. Vöxtur félagsins á milli áranna 2015 og 2016 var um 40% og stefnt er að um 50% vexti í ár. Verkefnastaða er góð hér heima og erlendis og útlit gott á flestum mörkuðum. Í alþjóðlegu samhengi hefur hækkun kostnaðar hérlendis gert að verkum að aukin áhersla hefur verið lögð á uppbygginu erlendis og eru kaupin í Bretlandi gott dæmi um það,“ segir Sigurður Hilmarsson, forstjóri Annata.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira