Útkoman varð minningar og meiningar í söngvum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2017 07:00 "Þetta er bara gítar og söngur. Eins einfalt og hugsast getur,“ segir Magnús um flutninginn á diskinum Máðar myndir. Mynd/Friðrika Ben
Diskurinn inniheldur átta lög og texta,“ segir Magnús R. Einarsson, sem lengi var dagskrárgerðarmaður á Rás 2, um sinn fyrsta hljómdisk sem nefnist Máðar myndir. Sjö laganna kveðst hann hafa samið á hálfum mánuði fyrir tveimur árum. „Ég átti frí í janúar þegar enginn annar var í fríi og fór bara heim, kveikti á tölvunni og slökkti á símanum og samdi sjö lög og texta á tveimur vikum. Vann frá sex á morgnana til tíu á kvöldin, nánast sleitulaust, og útkoman varð minningar og meiningar í söngvum. Svo fann ég eitt lag í skúffunni sem passaði við.“ Ekki segir Magnús flókið fyrirbæri að gefa út plötu, þó hafi það vafist fyrir honum um hríð. „Það er nefnilega þannig að tónlistarmennirnir skipta minna og minna máli en þeir sem fikta í græjunum og tölvunum meira og meira máli. Ég vildi bara vera einn með gítarinn, taka upp og engu breyta og því hélt ég til streitu. Að syngja vel er hæfileiki sem fáum er gefinn. Við hin gerum okkar besta. Svo kann ég nokkur grip en tilgangurinn með útgáfu disksins er að koma frá mér lögum og textum. Þetta er alger heimilisiðnaður nema hvað ég fór í bílskúrinn til hans Jóns Ólafssonar þrjá eða fjóra morgna.“ Magnús hefur verið músíkant frá því hann var strákur og spilað með fjölda hljómsveita og söngvara en diskurinn Máðar myndir er það fyrsta sem kemur út undir hans eigin nafni. „Þetta er eitthvað sem mig hefur lengi langað að gera en ekki látið verða af fyrr en núna. Ég er orðinn ellilífeyrisþegi og hafði nógan tíma til að brasa í þessu. Þegar maður hættir að vinna tekur við önnum kafið iðjuleysi. Ég er að læra frönsku og ég er að læra að teikna, ég er að semja og taka upp og svo hjóla ég um alla borgina,“ segir hann og á þar við París þar sem hann býr nú og unir hag sínum vel. „Við Rikka ætlum að vera hér í París í að minnsta kosti ár. Það er gaman að geta leyft sér að skipta um stíl,“ segir hann ánægjulegur. Skyldi hann ekki ætla að koma heim og halda útgáfutónleika? „Jú, líklega kem ég en þó ekki fyrr en um mánaðamótin október, nóvember.“ En hvar er hægt að nálgast diskinn? „Hann er bara seldur í póstsölu enda gefinn út í litlu upplagi. Ef menn hafa áhuga geta þeir haft samband við mig gegnum fésbókina. Þar eru flestir.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira