Julian lést í árásinni Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. ágúst 2017 14:53 Fjölskyldumeðlimir Julians Cadman lýstu eftir honum um helgina.
Hinn sjö ára gamli Julian Cadman, sem lýst hafði verið eftir, lést í árásinni í Barselóna á fimmtudag. Hann og móðir hans slösuðust bæði þegar hvítum sendiferðabíl var ekið niður Römbluna með þeim afleiðingum að 13 létust og 100 særðust. Nú er komið á daginn að Julian var einn þeirra.Sjá einnig: Lögreglan og utanríkisráðuneytið þvertaka fyrir að Julian sé fundinn Fjölskylda Julian sendi frá sér yfirlýsingu þar sem þetta kemur fram og segir hún að þau muni „aldrei gleyma brosi hans“ og að þau muni minnast hans með söknuði. Hún hefur farið þess á leit við katalónsku lögregluna að fá allar upplýsingar um mál hans og svör við því hvers vegna hann hafi ekki fundist fyrr.Beðið eftir niðurstöðum DNA-prófa Afi Julians deildi myndum af honum á samfélagsmiðlum og óskaði eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á honum. Tugþúsundir deildu myndum af honum og um tíma var talið að hann væri fundinn. Lögreglan og breska utanríkisráðuneytið voru þó fljót að bera þær fréttir til baka. Í samtali við Telegraph segir lögreglan að ekki hafi verið hægt fram til þessa að ganga úr skugga að um Julian væri að ræða því bíða þurfti niðurstaðna úr lífssýnatöku. Talið er að Julian hafi verið fluttur til Ciutat de la Justicia eftir árásina þangað sem farið var með fórnarlömbin til greiningar. Í kjölfarið hafi hann svo verið fluttur með móður sinni, í lögreglufylgd, á sjúkrahúsið Vall d'Hebron þar sem móðir hans gekkst undir aðgerð og er enn sögð í lífshættu.
Tengdar fréttir Lögreglan og utanríkisráðuneytið þvertaka fyrir að Julian sé fundinn Fjölmiðlar á Spáni hlupu á sig að sögn spænsku lögreglunnar 19. ágúst 2017 14:56 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira
Lögreglan og utanríkisráðuneytið þvertaka fyrir að Julian sé fundinn Fjölmiðlar á Spáni hlupu á sig að sögn spænsku lögreglunnar 19. ágúst 2017 14:56