Segja Íslendinga verja minna í lyfjakaup en aðrar þjóðir Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 15:03 Lyfjakaup eru um 8 prósent af útgjöldum til heilbrigðismála. Frumtök
Ekki er hægt að rekja vöxt heilbrigðisútgjalda í Evrópu til aukningar útgjalda vegna lyfjakaupa. Þetta kemur fram í tilkynningu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Vitnað er til gagna sem tekin voru saman af samtökum lyfjaframleiðenda í Evrópu. Þar segir einnig að innan OECD ríkjanna hafi útgjöld vegna lyfjagjalda dregist saman um 2 prósent frá árinu 2010. Þá sé fremur hægt að rekja aukinn kostnað vegna heilbrigðismála til hækkandi meðalaldurs þjóða og aukinnar tíðni langvinnra sjúkdóma. Lyf eru um fimmtungur af heildarkostnaði til heilbrigðismála í Evrópu en Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka telur að hlutfallið sé miklu lægra hér á landi. „Hér á landi er hlutfallið svo langtum lægra og er nú komið vel niður fyrir tíu prósent af heildarútgjöldum til heilbrigðismála. Hæst var hlutfallið skömmu eftir hrun, nálgaðist þá 13 prósent, en hefur lækkað hratt undanfarin ár og er nú á milli sjö og átta prósent af heilbrigðisútgjöldunum. Við höfum því aldrei verið nálægt þessu 20 prósenta meðaltalshlutfalli í Evrópu,“ segir Jakob Falur. Samtökin telja að enn sé verið að einbíla á útgjöld vegna lyfjakaupa þegar kemur að aðhaldsaðgerðum í heilbrigðiskerfinu þrátt fyrir að rannsóknir sýni að sá þáttur hafi hvað minnst áhrif. Því skipti máli að horfa til annarra þátta og heildrænnar greiningar á útgjöldum. Þannig megi auka skilning á heildarkostnaði við sjúkdóma og draga úr óskilvirkni í heilbrigðiskerfinu. Tekið er fram að þróun og nýsköpun í lyfjaiðnaði gefi af sér ódýrari valkosti í baráttu við sjúkdóma á borð við hjartakvilla og þunglyndi.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira