Afmæli eiginkonunnar haldið í leikhúsinu Sigurður Mikael Jónsson skrifar 22. ágúst 2017 07:00 Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. vísir/stefán „
Við erum almennt ekki að leigja út salinn, en starfsfólki er gefinn kostur á því á þeim tíma sem engar sýningar eru í húsinu, frá miðjum ágúst til byrjun september,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, sem hélt upp á fertugsafmæli eiginkonu sinnar, lögmannsins Katrínar Oddsdóttur, í forsal Borgarleikhússins um helgina. Slíkt stendur almenningi ekki til boða. Kristín segir að dæmi séu um að starfsfólk nýti sér þennan dauða tíma í starfsemi leikhússins til að halda brúðkaup, afmæli og erfidrykkjur. Aðspurð hvort greidd sé leiga fyrir slík afnot af húsnæðinu segir Kristín svo vera en um sé að ræða sérstakt starfsmannaverð. Aðspurð segir Kristín að hún og Katrín hafi greitt 40 þúsund krónur fyir salinn einan. Hún segir alla leigu á húsinu renna til Leikfélags Reykjavíkur. Kristín bætir við að öll laun starfsfólks Borgarleikhússins séu greidd af þeim sem veisluna heldur hverju sinni, ekki leikhúsinu og sama eigi við um veitingar. „Við elduðum mat sjálfar og keyptum allt áfengi sjálfar, að sjálfsögðu.“ Af myndum á samfélagsmiðlum að dæma var fertugsafmælisveislan hin glæsilegasta og forsalurinn vel nýttur fyrir skemmtiatriði af ýmsum toga. Kristín segir að verðlisti sé til fyrir leigu á sölum Borgarleikhússins, sem hafi meðal annars verið leigðir fyrirtækjum til fundarhalda. Það sé þó fátítt. „Sökum anna hér á veturna þá getum við nánast aldrei leigt út okkar sali. Forsalurinn er leigður út fyrir brúðkaup, erfisdrykkjur og afmæli en þá langoftast til starfsfólks á þessum tíma sem ég nefndi.“ Reykjavíkurborg er eigandi Borgarleikhússins sjálfs, en Leikfélag Reykjavíkur er sjálfseignarstofnun og ber stjórn þess ábyrgð á rekstri leikfélagsins og leikhússins. Í gildi er rekstrarsamningur borgarinnar við Leikfélag Reykjavíkur en í þriggja ára samningi sem gildir til ársloka 2018 nemur heildarframlag til starfsemi og rekstrar Borgarleikhússins um 936 milljónum króna. Að auki fékk Borgarleikhúsið 21 milljón í tímabundið framlag á fjárlögum ársins í ár sem ætlað er að styrkja reksturinn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira