Tekjusamdráttur Nýherja mikil vonbrigði Kristinn Ingi Jónsson skrifar 23. ágúst 2017 09:45 Tekjur upplýsingatæknifyrirtækisins Nýherja á öðrum fjórðungi ársins voru mun lægri en hagfræðideild Landsbankans hafði búist við.
Tekjur upplýsingatæknifyrirtækisins Nýherja á öðrum fjórðungi ársins voru mun lægri en hagfræðideild Landsbankans hafði búist við og ollu vonbrigðum. Hagfræðideildin hafði gert ráð fyrir kröftugum 16,9 prósenta söluvexti á tímabilinu en niðurstaðan varð hins vegar 4,9 prósenta samdráttur. Tekjur félagsins námu 3.608 milljónum króna á öðrum fjórðungi ársins borið saman við 3.794 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Hagfræðideildin hafði búist við að tekjurnar yrðu 4.436 milljónir á tímabilinu. Þrátt fyrir tekjusamdráttinn jókst hagnaður félagsins um 127 prósent á fjórðungnum og nam alls 166 milljónum króna. Hagfræðideildin bendir á að stjórnendur Nýherja hafi skýrt samdráttinn með vísan til gengisstyrkingar krónunnar og þess að fáir stórir samningar hafi verið gerðir á fjórðungnum. Telur hagfræðideildin samdráttinn þó koma á óvart í ljósi þess að á fyrsta fjórðungi ársins hafi gengi krónunnar einnig styrkst verulega án þess að til tekjusamdráttar kæmi. Hagfræðideildin gagnrýnir enn fremur lélega upplýsingagjöf af hálfu stjórnenda Nýherja. Segir hún að það væri óskandi að stjórnendurnir bættu upplýsingagjöfina um tekjur einstakra eininga Nýherjasamstæðunnar. „Ekkert samræmi er í því hvernig staðið er að þeirri upplýsingagjöf og því erfitt og oft ónákvæmt að bera saman einstaka fjórðunga og byggja á upplýsingagjöf félagsins,“ segja sérfræðingar hagfræðideildarinnar.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira