Vill sögufræga danska verslun á Hafnartorgið 10. ágúst 2017 06:00 Framkvæmdum á Hafnartorginu á að ljúka um mitt næsta ár. vísir/ernir
Fasteignafélagið Reginn hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins átt í viðræðum við eigendur Illums Bolighus um opnun dönsku húsgagna- og búsáhaldaverslunarinnar á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Forstjóri Regins vill ekki staðfesta að viðræðurnar standi yfir en heimildir herma að samkomulag sé ekki í höfn. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins.vísir/gva„Við erum með alls konar fólk í þessum málum [viðræðum við mögulega leigutaka] fyrir okkur heima og erlendis. Og það hefur verið rætt við alls konar aðila í Skandinavíu um verslanir,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, og vill ekki tjá sig frekar um málið. Illums Bolighus rekur sex verslanir í Danmörku. Sú þekktasta og stærsta, um tíu þúsund fermetrar að stærð, er á Amagertorgi við Strikið í Kaupmannahöfn. Þá rekur fyrirtækið einnig þrjár verslanir í Svíþjóð, tvær í Noregi og eina í Hamborg í Þýskalandi. Sú síðastnefnda er nýjasta verslun Illums og var opnuð í nóvember í fyrra. Fyrirtækið var stofnað árið 1925 og er í dag í eigu dansks fjárfestingafélags undir forystu Henrik Ypkendanz. Fyrirtækið tengist ekki stórversluninni Illum, sem rekin er í næsta húsi á Strikinu, og var í eigu Baugs Group og annarra íslenskra fjárfesta á árunum fyrir hrun. Reginn keypti um 8.600 fermetra verslunar- og veitingarými á Hafnartorgsreitnum sem nú er í byggingu. Verklok eru áætluð um mitt næsta ár en eins og komið hefur fram mun sænski fatarisinn H&M opna sína þriðju verslun hér á landi á torginu. Reginn og dótturfélag þess, Eignarhaldsfélagið Smáralind, undirrituðu í júlí í fyrra leigusamninga við H&M um opnun tveggja verslana. Flaggskipsverslunin, um 4.300 fermetrar að stærð og á tveimur hæðum, verður opnuð í Smáralind í lok þessa mánaðar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira