Sylvía Kristín nýr deildarstjóri hjá Landsvirkjun Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2017 14:35 Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2015. Landsvirkjun
Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun. „Sylvía hefur starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2015 sem forstöðumaður tekjustýringar á markaðs- og viðskiptaþróunarsviði. Áður starfaði hún hjá höfuðstöðvum Amazon í Evrópu fyrst við rekstur og áætlanagerð um innviði vöruhúsa víðs vegar um Evrópu. Þaðan fór Sylvía í Kindle deild fyrirtækisins og sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur. Áður starfaði Sylvía m.a sem forstöðumaður á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands og hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Sylvía er með M.Sc. próf í Operational Research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt stundakennslu við verkfræðideild HÍ í rekstrarfræði, kvikum kerfislíkönum og verkefnastjórnun (MPM). Sylvía situr í stjórn Ölgerðarinnar og Orkufjarskipta. Sylvía er gift Kjartani Björgvinssyni og eiga þau tvö börn,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að hlutverk jarðvarmadeildar á orkusviði sé að annast aflstöðvar Landsvirkjunar á sviði jarðvarma og vindorku þannig að þær skili tilgreindu hlutverki sínu. „Deildin ber ábyrgð á rekstri, eftirliti og viðhaldi þessara orkuvirkja og leggur áherslu á öryggi og hagkvæmni, umhverfismál og samstarf við nærsamfélag.“
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira