Taka við stöðum skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu Atli Ísleifsson skrifar 16. ágúst 2017 12:43 Berglind Bára Sigurjónsdóttir og Ragna Bjarnadóttir. dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra mun á næstu dögum skipa þær Berglindi Báru Sigurjónsdóttur, skrifstofustjóra hjá umboðsmanni Alþingis, og Rögnu Bjarnadóttur, lögfræðingi hjá dómsmálaráðuneytinu, í stöður skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu. Stöðurnar voru auglýstar fyrr í sumar og bárust alls 33 umsóknir, en þrír umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Í frétt á vef ráðuneytisins segir að niðurstaða valnefndar sem dómsmálaráðherra skipaði hafi verið að mæla með sex umsækjendum sem hafi talist hæfastir til að gegna embættunum. Voru þær Berglind Bára og Ragna í hópi þeirra. „Berglind Bára Sigurjónsdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og hóf í kjölfarið störf sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Frá árinu 2010 hefur hún starfað sem löglærður skrifstofustjóri hjá embættinu. Hún hefur jafnframt verið stundakennari á ýmsum námskeiðum á meistarastigi við lagadeild HÍ, stjórnmálafræðideild HÍ og hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Ragna Bjarnadóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og meistaraprófi frá Oxfordháskóla 2009. Ragna var aðstoðarsaksóknari hjá embætti ríkissaksóknara árin 2006 til 2008, aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2009-2010, var lögfræðingur hjá Mannréttindasdómstóli Evrópu 2011 til 2014 og hefur verið stundakennari við lagadeildir HÍ og Háskólans í Reykjavík. Frá árinu 2016 hefur Ragna starfað sem lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, nú dómsmálaráðuneytinu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira