Samþykktu tilboð í þrjár fasteignir í eigu Háskólans á Bifröst Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. ágúst 2017 06:00 Eignir Háskólans á Bifröst voru boðnar til sölu í vor. vísir/pjetur
Háskólinn á Bifröst hefur samþykkt tilboð í þrjár fasteignir skólans sem boðnar voru til sölu í vor. Samþykkið er þó háð fyrirvara um fjármögnun, en kaupendur hafa nokkrar vikur til þess að tryggja hana. Um er að ræða tvær byggingar sem bera nafnið Sjónarhóll, en þar má finna 48 íbúðir, og fjögurra hæða byggingu, auk kjallara, að nafni Hamragarðar. Þar má finna 51 herbergi sem eru útbúin sem hótelherbergi.Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á BifröstHafsteinn Sæmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Háskólans á Bifröst, segir í samtali við blaðið að engin önnur tilboð hafi borist í eignir skólans. Fjárfestum var meðal annars boðið að kaupa eignirnar í einu lagi, en ekki reyndist vera áhugi fyrir því. Hafsteinn telur ekki tímabært á þessari stundu að upplýsa hvaða fjárfestar standi að baki tilboðinu eða hvert mögulegt kaupverð sé. Samkvæmt verðmati Capacent frá því í vor voru eignirnar, sem og rekstur Hótels Bifrastar, metnar á bilinu 1,5 til 2,5 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að stjórnendur háskólans muni funda með kaupendunum í næstu viku. Segir Hafsteinn að þá muni málin skýrast frekar. Ekki er vitað hvernig kaupendurnir hyggjast nýta eignirnar. Í tilkynningu frá skólanum á sínum tíma kom fram að eignirnar hefðu verið settar á sölu til að bregðast við fækkun sem hafði orðið í staðnámi hjá skólanum. Ekki væri lengur sama þörf og áður fyrir húsnæði á svæðinu. Um áttatíu prósent af nemendum skólans eru í fjarnámi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira