Glamour

„Ég birti þessa mynd fyrir ungar stelpur, mömmur og konur á öllum aldri“

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Hillary Duff birti mynd af sér á Instagram um helgina sem hefur farið á flug á samfélagsmiðlum. Ekki kannski beint vegna myndaefnisins heldur textans sem hún skrifar undir.

Á myndinni stendur Duff á sundbolnum með son sinn í fanginu á ströndinni og skrifar undir að þessi myndbirting sé fyrir „allar ungar stelpur, mömmur og konur á öllum aldri.“

Þar segir hún að sum tímarit elski að birta myndir af fræga fólkinu í litlum klæðum og benda á gallana þeirra. „Og hér eru mínir. Líkaminn minn hefur gefið mér bestu gjöf lífsins. Lucas sem er fimm ára. Ég verð 30 ára í september, líkaminn minn er hraustur og kemur mér þangað sem ég vil fara.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Duff notar Instagram til að koma skoðunum sínum á framfæri Hún var gagnrýnd fyrir nokkru síðan er hún kyssti son sinn á munninn í Disneyland fyrir myndatöku og lét hún þá einmitt heyra það í gegnum samfélagsmiðilinn. 

Áfram Hillary Duff - hressandi!






×