Íslendingar hættir við að kaupa Seachill Kristinn Ingi Jónsson skrifar 27. júlí 2017 07:00 Smásölukeðjan Tesco er helsti viðskiptavinur Seachill. Vísir/EPA
Íslenski fjárfestahópurinn sem lagði fyrr í sumar fram kauptilboð í Seachill, dótturfélag Icelandic Group í Bretlandi, hefur hætt við kaupin. Erlent félag, sem tengist ekki sjávarútvegi, er nú sagt eiga í einkaviðræðum við stjórn Icelandic Group um kaup á Seachill. Félagið Steinasalir, sem er meðal annars í eigu íslensku sjávarútvegsfélaganna Brims, Þorbjarnar, Hraðfrystihúss Hellissands, Kambs, KG fiskverkunar, Sæmarks, Fishproducts Iceland og fagfjárfestasjóðsins Akurs, ákvað fyrr í vikunni að segja sig frá söluferlinu. Sama félag keypti belgíska félagið Gadus af Icelandic fyrr á árinu. Stjórn Icelandic Group, sem er að fullu í eigu Framtakssjóðs Íslands, ákvað í apríl síðastliðnum að hefja söluferli á Seachill. Félagið, sem var stofnað árið 1998, er leiðandi framleiðandi kældra fiskafurða inn á breska smásölumarkaðinn, en tekjur þess námu um 266 milljónum punda, sem jafngildir um 36,3 milljörðum króna, í fyrra. Í frétt Undercurrent News segir að kaupverðið á Gadus hafi numið allt að fjörutíu milljónum evra, eða 4,9 milljörðum króna, sem er um áttfaldur rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBIDTA). EBIDTA Seachill nam um 10,4 milljónum punda, sem jafngildir um 1,4 milljörðum króna, í fyrra þannig að ætla má að mögulegt kaupverð á félaginu geti numið yfir tíu milljörðum króna. Vöxtur Seachill frá stofnun hefur að miklu leyti byggst á nánu samstarfi við Tesco, stærstu smásölukeðju Bretlands, en félagið hefur lengi séð Tesco fyrir fjölbreyttu úrvali sjávarafurða. Söluferlið er í höndum Íslandsbanka og Oghma Partners.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira