Landsbankinn hagnaðist um 12,7 milljarða á fyrri hluta ársins Atli Ísleifsson skrifar 27. júlí 2017 17:31 Vaxtamunur eigna og skulda bankans nam 2,5% á fyrri helmingi ársins 2017. Vísir/Andri marínó
Landsbankinn hagnaðist um 12,7 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2017. Hagnaðurinn nam 11,3 milljarða króna á sama tímabili árið 2016. Í tilkynningu frá bankanum segir að arðsemi eigin fjár á tímabilinu hafi verið 10,6 prósent á ársgrundvelli samanborið við 8,6 prósent á sama tímabili 2016. Kostnaðarhlutfall lækki og er nú 43 prósent. „Hreinar vaxtatekjur voru 18,2 milljarðar króna og hækkuðu um 3,2% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 4,4 milljörðum króna og hækkuðu um 13,8% frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar lækkuðu um 1 milljarð króna á milli tímabila og vanskilahlutfall heldur áfram að lækka, var 1,1% á fyrri helmingi ársins samanborið við 1,7% á sama tímabili 2016. Rekstrartekjur bankans á fyrri helmingi ársins hækkuðu um 2,5% frá sama tímabili ári áður, úr 28,6 milljörðum króna í 29,3 milljarða króna. Aðrar rekstrartekjur námu 5,4 milljörðum króna samanborið við 4,8 milljarða króna sama tímabil árið áður og skýrist hækkunin aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum á óskráðum hlutabréfum. Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,5% á fyrri helmingi ársins 2017 en var 2,3% á sama tímabili árið áður. Rekstrarkostnaður bankans nam 12 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins 2017 sem er lækkun um 1,7% miðað við sama tímabil árið 2016. Þar af var launakostnaður 7,1 milljarður sem er lækkun um 2,3% frá sama tímabili 2016. Annar rekstrarkostnaður lækkaði um 0,8% frá sama tímabili árið 2016 og var 4,9 milljarðar. Kostnaðarhlutfall á fyrri helmingi ársins 2017 var 43,0% sem er lækkun um 4,3 prósentustig frá sama tímabili árið áður. Skýrist lækkunin einkum af jákvæðri þróun á mörkuðum ásamt lægri rekstrarkostnaði bankans. Eigið fé Landsbankans var 238,9 milljarðar króna 30. júní sl. og eiginfjárhlutfallið var 27,6%,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira