Losar 60 milljarða úr símafyrirtæki Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. júlí 2017 06:00 Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir. vísir/gva
Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hyggst losa sig við 60,8 milljarða króna hlut í pólska fjarskiptafélaginu Play í hlutafjárútboði í kauphöllinni í Varsjá í næstu viku. Útboðið verður það stærsta í sögu Póllands ef frá eru taldar sölur pólskra ríkisfyrirtækja. Eigendur Play, gríska fjárfestingafélagið Tollerton og Novator, hyggjast selja 48,6 prósent hlutafjár í félaginu í umræddu útboði. Í lok síðustu viku var greint frá því að gengið í útboðinu yrði 36 pólsk slot á hvern hlut og verður söluandvirðið því 4,4 milljarðar slot eða sem jafngildir 124 milljörðum króna. Þar af mun Novator losa sig við 24,2 prósent hlut í Play en hluturinn er metinn á 60,8 milljarða króna samkvæmt útboðsgenginu. Enn fremur skuldbindur Novator sig til þess að selja ekki fleiri hluti í félaginu í 180 daga eftir útboðið. Novator fer með rétt tæplega helmings eignarhlut í Play á móti Tollerton. Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Novator, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og vísaði til opinberra tilkynninga sem Play hefur sent frá sér vegna útboðsins. Miðað við útboðsgengið er Play, sem er næst stærsta fjarskiptafélag Póllands, metið á 9,1 milljarð slot sem jafngildir 261 milljarði íslenskra króna. Eftir útboðið mun Novator eiga 25,5 prósenta hlut í félaginu að virði 66,6 milljarða króna. Söluandvirðið í útboðinu verður meðal annars nýtt til þess að greiða niður skuldir Play, en dágóð fjárhæð mun jafnframt renna í vasa eigendanna, Novator og Tollerton. Ekki liggur fyrir hver hún verður. Play, sem var stofnað fyrir um tíu árum, hefur stóraukið markaðshlutdeild sína á pólskum fjarskiptamarkaði á undanförnum árum. Hlutdeildin var fimm prósent árið 2008 en er nú um 27 prósent. Viðskiptavinir þess eru yfir fjórtán milljónir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira