Hvetur til sameiningar tæknifyrirtækja Kristinn Ingi Jónsson skrifar 6. júlí 2017 06:00 Áætlaður meðaltekjuvöxtur tæknifyrirtækja innan sjávarklasans var fimm til tíu prósent í fyrra samkvæmt skýrslu Íslenska sjávarklasans. vísir/eyþór
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, hvetur til aukinnar samvinnu og jafnvel sameiningar lítilla tæknifyrirtækja í sjávarútvegi. Hann segir mörg þessara fyrirtækja bjóða afburðalausnir en sökum smæðar sinnar eigi þau erfitt um vik að vaxa og hasla sér völl á erlendum mörkuðum. „Við sjáum gríðarleg tækifæri fyrir mörg þessara litlu tæknifyrirtækja til þess að auka samstarf sín á milli eða sameinast. Þau búa yfir afburðatækni og mikilli þekkingu en eðlilega standa þau nokkuð í stað vegna smæðarinnar. Þau hafa til dæmis ekki mikið bolmagn til þess að sinna markaðs- og kynningarmálum. Erlendir kaupendur óttast líka margir að þau geti ekki sinnt viðhaldi og þjónustu eins og vera ber,“ segir Þór í samtali við blaðið. Aukin samvinna fyrirtækjanna sé þeim afar mikilvæg ef þau hafi á annað borð áhuga á að vaxa frekar á komandi árum. Í nýrri skýrslu Íslenska sjávarklasans um stöðu tæknifyrirtækja sem þjóna sjávarútvegi kemur fram að einkum stóru tæknifyrirtækin, svo sem Marel, Hampiðjan, Skaginn 3X og Valka, hafi vaxið hröðum skrefum á undanförnum árum á meðan litlu fyrirtækin hafi í mesta lagi haldið í horfinu. Áætlað er að velta tæknifyrirtækja innan sjávarklasans hafi vaxið á bilinu fimm til tíu prósent í fyrra. Það er minni vöxtur en undanfarin ár en skýringuna má aðallega rekja til gengisstyrkingar krónunnar. Sum stór eða meðalstór tæknifyrirtæki juku veltu sína um þrjátíu til fjörutíu prósent á meðan minni fyrirtæki stóðu mörg hver í stað eða velta þeirra jafnvel dróst saman. Ætla má að heildarvelta tæknifyrirtækja í sjávarklasanum nálgist sjötíu milljarða króna.Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasansMestar áhyggjur fyrirtækjanna snúa að sterku gengi krónunnar, en mörg fyrirtækjanna eru með bróðurpart veltu sinnar í erlendri mynt. Samkeppnisstaða þeirra hafi af þeim sökum beðið hnekki. Þór bendir auk þess á að staða helstu viðskiptavina fyrirtækjanna hafi veikst vegna krónunnar. Versnandi afkoma með sterkara gengi sé til dæmis líkleg til þess að draga verulega úr fjárfestingum sjávarútvegsfyrirtækja í nýrri tækni og búnaði. Á móti komi að mörg tæknifyrirtækjanna, sér í lagi þau stærri, hafi eflst mjög á síðustu árum og bjóði lausnir sem séu að fullu samkeppnishæfar. Þannig hafi þeim tekist að viðhalda góðri samkeppnisstöðu á alþjóðlegum mörkuðum, þrátt fyrir sterkari krónu. „Það er auðvitað ánægjulegt á tímum sterkrar krónu,“ segir Þór. Í skýrslunni kemur auk þess fram að mörg tæknifyrirtæki hafi víkkað út starfsemi sína og sinni nú í auknum mæli annarri matvælaframleiðslu. Fyrirtæki sem áður sinntu einungis sjávarútvegi bjóði nú sérstakar lausnir fyrir til dæmis kjúklinga- og svínaiðnaðinn. Sömu sögu sé að segja af vaxandi þjónustu tæknifyrirtækja við fiskeldi. Þór segir að mikil tækifæri felist í því fyrir íslensk tæknifyrirtæki að víkka með þessum hætti starfsemi sína út. Það krefjist þess þó að fyrirtækin auki samvinnu sín á milli, meðal annars í gegnum Íslandsstofu. Skaginn velti 4,3 milljörðum króna í fyrraVelta hátæknifyrirtækisins Skagans, sem selur tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, einkum fiskvinnslu, jókst um 42 prósent í fyrra og nam um 4,32 milljörðum króna. Hagnaður fyrirtækisins dróst saman um eitt hundrað milljónir á árinu og nam 248,4 milljónum króna og þá var EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, 409,3 milljónir króna, samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins. Eignir fyrirtækisins voru 1,8 milljarðar í lok síðasta árs en þær jukust um 26 prósent á milli ára. Var eiginfjárhlutfallið 29,4% í árslok. Meðalfjöldi stöðugilda var 84 á árinu. Skaginn er í eigu félagsins I.Á. Hönnunar sem er að öllu leyti í eigu Ingólfs Árnasonar, framkvæmdastjóra og stofnanda fyrirtækisins. Fær félagið greiddar 250 milljónir króna í arð í ár. Fyrr á árinu var tilkynnt um að fyrirtækin Skaginn, 3X Technology ásamt Þorgeiri og Ellert verði í framtíðinni kynnt undir sameiginlegu vörumerki, Skaginn 3X.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira