Útboð hjá Isavia kært Ingvar Þór Björnsson skrifar 25. júní 2017 18:52 Ríkisskaup samþykktu að bíða með opnun þar til niðurstaða kærunefndar liggur fyrir. Vísir/Stefán
Félag Hópferðaleyfishafa hefur kært útboð Isavia um aðstöðu hópferðabifreiða við Keflavíkurflugvöll vegna mismunar gagnvart bjóðendum. Telur félagið að ónákvæmir og óljósir útboðsskilmálar hafi verið til þess fallnir að raska jafnræði bjóðenda. Með kærunni er meðal annars krafist að innkaupaferlið verði stöðvað þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Félag hópferðaleyfishafa krefst einnig að opnun tilboða vegna útboðsins verði frestað þar til búið sé að taka afstöðu til framkominnar kæru félagsins. Bjarki Sveinsson lögmaður, hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur og lögmaður Félags hópferðaleyfishafa, sagði í samtali við Vísi að útboðsgögnin virðist vera óvönduð og gefa möguleika á mismunun gagnvart bjóðendum. „Ýmsar upplýsingar, sem sumir hafa og aðrir hafa ekki, eru ekki gefnar upp og þar með sitja ekki allir við sama borð,“ sagði Bjarki. Á hann þar til að mynda við upplýsingar um farþegafjölda og hversu mikil notkun er á samgöngunum á þessu svæði. „Það er aðalatriði fyrir þessa bjóðendur að geta gert áætlanir. Tveir aðilar eru búnir að sinna þessu áður og vita nákvæmlega allar fjöldatölur og eru þar með betur í stakk búnir til að gera tilboð en aðrir.“ Einnig setur félagið út á önnur hópferðastæði á svæðinu sem Isavia hyggst rukka fyrir. Samkvæmt Bjarka hafa ekki fengist upplýsingar um hvernig þessi gjaldtaka verður útfærð en að ljóst sé að það sé mikilvægur áhrifaþáttur fyrir bjóðendur. „Ef Isavia rukkar hátt gjald fyrir stæðin er ljóst að þeir aðilar sem fá samninginn sitja mjög vel að vígi en samningurinn er mun verðminni ef lítið verður rukkað fyrir stæðin. Fyrir hönd félags Hópferðaleyfishafa tel ég að þetta raski jafnræði og sé ekki gott fyrir frjálsa samkeppni,“ segir Bjarki. Einnig gerir Félag hópferðaleyfa kröfu um að Isavia felli niður ákvæði um að skil tilboða sé um 21 klukkustund áður en opnun þeirra og að Isavia geri breytingu í útboðsgögnum á því að bjóðandi greiði að lágmarki hlutfall af lágmarksveltu í þóknun og gefi upp fasta veltutölu. Til vara er krafist að kærunefndin beini því til Isavia að auglýsa útboðið á nýjan leik án framangreindra skilmála í útboðsgögnum. Kæran leiðir til stöðvunar samningsgerðar enda barst hún innan lögboðins biðtíma. Kaupanda er því óheimilt að gera samning þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Ríkisskaup samþykktu að bíða með opnun þar til niðurstaða kærunefndar liggur fyrir.
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira