Íslenskur tölvuleikur sem þjálfar tóneyrað kominn í App Store Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júní 2017 11:23 Ýmsir skemmtilegir karakterar verða á vegi spilara Mussila Planets. Rosamosi
Mussila Planets, íslenskur tölvuleikur úr smiðju tölvuleikjaframleiðandans Rosamosa, kom út í App Store og Google Play í gær. Tölvuleikurinn er sá fjórði í Mussila-leikjaseríunni en leiknum er ætlað að þjálfa tóneyra spilara sinna gegnum skapandi leik.Úr spilun leiksins.RosamosiÍ fréttatilkynningu frá framleiðendum tölvuleiksins segir að fyrirtækið Rosamosi, sem stendur að gerð leiksins, hafi verið stofnað árið 2015 af tónlistarkonunni Margréti Júlíönu Sigurðardóttur og tölvuverkfræðingnum Hilmari Þór Birgissyni. Fyrirtækið hefur það að markmiði að þróa tölvuleiki fyrir börn þar sem ævintýri og skapandi leikur eru nýtt til að kenna börnunum grunnatriði í tónlist. Fimm manns starfa nú daglega hjá fyrirtækinu. Í Mussila Planets ferðast spilarinn um framandi plánetur en á leið sinni tekst hann á við tónlistarlegar áskoranir af ýmsu tagi, nælir í nótur og spilar laglínur. Fyrsti leikurinn frá Rosamosa, Mussila – Musical Monster Adventure, kom út á alþjóðavísu í júní í fyrra og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Leikurinn fékk meðal annars fimm stjörnu dóm í tímaritinu BBC Music Magazine. Þá hefur leikurinn verið notaður í tónlistarkennslu í öllum grunnskólum Garðabæjar og þremur skólum í Eistlandi.Hér að neðan má sjá stiklu fyrir tölvuleikinn Mussila Planets en hann er sá fjórði í Mussila-leikjaseríunni á vegum Rosamosa.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira