Máli gegn VSV vísað frá Kristinn Ingi Jónsson skrifar 16. júní 2017 07:00 Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður, kenndur við Brim.
Héraðsdómur Suðurlands hefur vísað frá máli sem Brim höfðaði á hendur Vinnslustöðinni til ómerkingar á stjórnarkjöri sem fram fór á aðalfundi og hluthafafundi Vinnslustöðvarinnar síðasta sumar. Var það niðurstaða dómsins að Brim, sem er næststærsti hluthafi Vinnslustöðvarinnar með tæplega 33 prósenta hlut, hefði ekki sýnt fram á að félagið hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um kröfur sínar. Brim kvaðst hafa lögmæta hagsmuni af því að krefjast þess að fyrra stjórnarkjörið á aðalfundinum, sem fram fór 6. júlí, gilti, enda væri ljóst að úrslit síðari kosninganna hefðu ekki verið félaginu eins hagstæð og úrslit fyrri kosninganna. Eins og kunnugt er skilaði atkvæðaseðill eins hluthafa sér ekki í kjörkassa en það atkvæði hefði ráðið úrslitum um stjórnarkjörið. Ákvað fundarstjóri því að endurtaka stjórnarkjörið en þá náðu fulltrúar Brims, bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir, ekki kjöri í stjórn og varastjórn. Stjórn Vinnslustöðvarinnar boðaði í kjölfarið til hluthafafundar, sem fór fram þann 31. ágúst, þar sem kosið var til stjórnar á ný. Brim mótmælti því harðlega og vísaði til þess að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hefði málið til skoðunar. Á hluthafafundinum var stjórn félagsins sjálfkjörin, en fulltrúar Brims drógu framboð sitt til baka rétt fyrir fundinn. Var það niðurstaða dómsins, eins og áður segir, að Brim hefði ekki sýnt fram á að félagið hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um kröfur sínar í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Bestu íslensku auglýsingar ársins 2013 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Sjá meira