Stefna Norðurturninum og vilja lógó sitt á húsið Haraldur Guðmundsson skrifar 16. júní 2017 07:00 Íslandsbanki er eini leigutaki Norðurturnsins sem hefur fengið að setja lógó sitt utan á bygginguna. Forsvarsmenn LS Retail eru ósáttir. Vísir/GVA
LS Retail undirbýr málshöfðun gegn eiganda Norðurturnsins við Smáralind eftir að kröfu hugbúnaðarfyrirtækisins um að lógó þess yrði sýnilegt utan á byggingunni var hafnað. Harðar deilur um merkingar á húsinu komu upp eftir að Íslandsbanki flutti þangað og ætlar LS Retail að leggja fram kæru fyrir lok júní. Þetta staðfestir Sigrún Dóra Sævinsdóttir, rekstrarstjóri LS Retail, og segir fyrirtækið fara fram á að jafnræðis sé gætt varðandi merkingar utan á húsinu. LS Retail hafi ítrekað lagt fram málamiðlunartillögur sem hafi verið hafnað. Íslandsbanki tilkynnti í apríl í fyrra að höfuðstöðvar fyrirtækisins yrðu fluttar frá Kirkjusandi í turninn í Kópavogi. Tveimur mánuðum áður hafði LS Retail gert tíu ára leigusamning við Norðurturninn hf. um fimm hæðir. Í nóvember í fyrra greindi DV síðan frá óánægju annarra leigutaka í húsinu með ákvörðun stjórnarinnar um að leyfa bankanum og engum öðrum að setja lógó sitt á stigahús turnsins. Bankinn hefði einnig farið fram á að opinbert heiti byggingarinnar yrði „Íslandsbankaturninn“. Ríkharð Ottó Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Norðurturnsins, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Að sögn Sigrúnar Dóru hefur Norðurturninn beitt fyrir sig ákvæði í leigusamningnum við LS Retail sem kveður á um að merkingar séu bannaðar nema í samráði við leigusala og í samræmi við merkingar annarra leigutaka. LS Retail hafi mátt vera ljóst frá upphafi að merkið yrði ekki utan á byggingunni. Stjórnendur fyrirtækisins líti aftur á móti svo á að þar séu „hlutir slitnir úr samhengi“ enda hafi við undirritun leigusamningsins ekki annað búið að baki en liðlegheit og forsendur síðar breyst þar sem stjórnendur Norðurturnsins hafi á þeim tíma haft áform um að engin firmamerki yrðu utan á byggingunni. Íslandsbanki er einn eigenda Norðurturnsins hf. og átti í árslok 2016 alls 22,85 prósenta hlut. Fyrirtækið á því fulltrúa í stjórn turnsins og er einnig einn af lánveitendum hans.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira