Setja á laggirnar íbúarekið leigufélag í Hafnarfirði Sæunn Gísladóttir skrifar 16. júní 2017 07:00 Áætluð verklok yrðu á næsta ári. Vísir/Eyþór
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar í gærmorgun voru lögð fram drög að stofnsamþykktum íbúarekins leigufélags í bænum sem hefur það að markmiði að lækka leiguverð, draga úr yfirbyggingu og auka aðkomu og þátttöku íbúanna sjálfra. Að mati bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar er hér um að ræða stórt framfaraskref innan sveitarfélagsins. Hvatinn að verkefninu er að bregðast við þörf á öruggu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að vinna áfram að málinu, segir í tilkynningu. Í ljósi ástands og aðstæðna á íbúðamarkaði í dag og mikillar eftirspurnar eftir húsnæði í Hafnarfirði telur sveitarfélagið að allar forsendur séu til staðar til að leigjendur komi sjálfir að rekstri og utanumhaldi um leigu á almennum íbúðum. Hugmyndin er að leigjendurnir sjálfir verði aðilar að sjálfseignarstofnun um félagið sem á og rekur íbúðirnar. Gert er ráð fyrir að félagið fái stofnframlag frá sveitarfélagi og Íbúðalánasjóði sem nemur samtals 30 prósentum af byggingarkostnaði, sveitarfélagið leggi til 12 prósent og Íbúðalánasjóður 18 prósent. Leiga á svo að standa undir afborgunum og vöxtum af láni. Verklok framkvæmda eru áætluð í lok næsta árs.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira