Kaupverð Festar yfir markaðsvirði Haga Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. júní 2017 07:00 Festi rekur meðal annars sautján Krónuverslanir. Vísir/Vilhelm
Kaupverð olíufélagsins N1 á Festi, næststærstu smásölukeðju landsins, er rúmlega 20% hærra en verð Haga á markaði ef miðað er við hefðbundna verðkennitölu. Á þetta er bent í viðbrögðum sérfræðinga Capacent við kaupunum. Þeir benda jafnframt á að samkvæmt síðasta verðmati sínu á Högum, helsta keppinauti Festar, sé félagið verulega undirverðlagt á markaði. Taka ber þó fram að umrætt verðmat var unnið áður en Costco opnaði verslun sína í Kauptúni og er því líklegt að verðmat Haga lækki eftir annan fjórðung ársins. N1 tilkynnti um fyrirhuguð kaup sín á Festi, sem rekur meðal annars verslanir Krónunnar og Elko, fyrr í mánuðinum. Kaupverðið nemur 8.750 milljónum króna og er heildarvirði Festar metið á 37.900 milljónir króna í viðskiptunum. Rekstrarhagnaður Festar fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, svonefnt EBITDA, er áætlaður um 3.340 milljónir króna árið 2016. Fram kemur í viðbrögðum Capacent við kaupunum að svonefnt EV/EBITDA-hlutfall, þ.e. rekstrarhagnaður sem hlutfall af heildarvirði, fyrir Festi sé 11,3 ef miðað er við uppgefið kaupverð á félaginu. Sama hlutfall hjá Högum er hins vegar 9,3. Það þýðir með öðrum orðum að kaupverð Festar er umtalsvert hærra en núverandi markaðsverð Haga.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Sextíu milljóna króna styrkur vegna vatnsleka Borgarráð samþykkti á fimmtudag tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að veita íþróttafélaginu Víkingi sextíu milljóna króna styrk til að gera við kjallara í húsnæði félagsins í Fossvogi eftir verulegt vatnstjón sem varð þar vor. 17. júní 2017 07:00 Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Sextíu milljóna króna styrkur vegna vatnsleka Borgarráð samþykkti á fimmtudag tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að veita íþróttafélaginu Víkingi sextíu milljóna króna styrk til að gera við kjallara í húsnæði félagsins í Fossvogi eftir verulegt vatnstjón sem varð þar vor. 17. júní 2017 07:00