Ríkissjóður láti borgina hafa sex lóðir til íbúabyggðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. maí 2017 07:00 Fasteignaverð hefur hækkað um fimmtung á einu ári. vísir/vilhelm
Aðgerðahópur fjögurra ráðuneyta sem mótar tillögur í húsnæðismálum hefur lokið störfum og er áætlað að kynna niðurstöður hópsins í næstu viku í fyrsta lagi. Þar verða tillögur að fjórtán aðgerðum í húsnæðismálum kynntar. Tillögurnar hafa ekki verið kynntar í ríkisstjórn og því hvílir enn nokkur leynd yfir þeim. Hópurinn var myndaður síðari hluta febrúarmánaðar. Fréttablaðið hefur þó heimildir fyrir því að á meðal þeirra tillagna sem kynntar verði sé að ríkissjóður láti Reykjavíkurborg hafa sex lóðir vestan Kringlumýrabrautar sem hægt væri að skipuleggja fyrir íbúðabyggð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er með tillögunum einkum horft til aðgerða sem myndu koma millitekjufólki og lágtekjufólki til góða. Samkvæmt tölum Þjóðskrár, sem Hagsjá Landsbankans vísaði til í gær, hefur fasteignaverð hækkað um tæp 23% á höfuðborgarsvæðinu á síðustu 12 mánuðum. Það þýðir að íbúð sem kostaði 50 milljónir í maí í fyrra kostar í dag tæpar 62 milljónir. Í Hagsjánni kemur líka fram að á árunum 2010-15 þróaðist fasteignaverð í nokkuð góðu samræmi við þætti eins og þróun kaupmáttar og byggingarkostnað. Verðið hefur hækkað verulega að undanförnu og mikið meira en þessir undirliggjandi þættir geta skýrt þannig að venjubundið samhengi hefur rofnað. Það virðist því sem skortur á framboði eigna sé sá þáttur sem hafi helst stýrt þróun fasteignaverðs síðustu mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira