Brynhildur S. Björnsdóttir nýr stjórnarformaður Sjúkratrygginga Íslands Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. maí 2017 13:30 Brynhildur S. Björnsdóttir.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað Brynhildi S. Björnsdóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands. Fyrsti fundur nýs formanns með stjórn stofnunarinnar verður haldinn í dag. Brynhildur tekur við stjórnarformensku af Hákoni Stefánssyni lögfræðingi, en hann tekur sæti sem aðalmaður í stjórninni. Brynhildur var stjórnarformaður Bjartrar framtíðar 2015-2016 og hefur átt sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Bjarta framtíð. Brynhildur er framkvæmdastjóri hjá GG Verk Ehf. Hún sótti nám í Harvard Business School árið 2016, lauk MSc. Gráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun og stefnumótun árið 2009 og BA frá Háskólanum á Bifröst í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði árið 2007. Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Hlutverk hennar er að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Stjórnin skal hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma. Formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur hennar og greiðslur til sjúkratryggðra eru ekki í samræmi við fjárlög. Stjórnin er nú þannig skipuð: Brynhildur S. Björnsdóttir, M.Sc í stjórnun og stefnumótun, formaður Berglind Hallgrímsdóttir, verkfræðingur Til vara: Jónína Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi Hákon Stefánsson, lögfræðingur Til vara: Guðjón Bjarni Hálfdánarson, lögfræðingur Guðmundur Magnússon, rekstrarverkfræðingur Til vara: Vífill Karlsson, hagfræðingur Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur Til vara: Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira