Fjárfestingatekjur TM jukust um 224 prósent á fyrsta fjórðungi Hörður Ægisson skrifar 10. maí 2017 16:13 Hagnaður TM á fyrsta ársfjórðungi nam 966 milljónum. VÍSIR/STEFÁN
Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar á fyrstu þremur mánuðum ársins nam samtals 966 milljónum króna borið saman við aðeins 10 milljónir á sama tímabili í fyrra. Þar munar langsamlega mest um að fjárfestingatekjur félagsins voru 1.326 milljónir á fjórðungnum og jukust um 224 prósent á milli ára. TM hefur af þessum sökum uppfært spá sína umfjárfestingatekjur á árinu og gerir ráð fyrir að þær verði 3.613 milljónir en upphafleg spá hljóðaði upp á 2.347 milljónir. Væntingar eru um betri afkomu á öðrum fjórðungi miðað við fyrri áætlanir. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu frá TM en þar er haft eftir Sigurði Viðarssyni, forstjóra félagsins, að afkoman hafi verið „mjög góð og langt umfram væntingar“ sem skýrist af fjárfestingastarfseminni. „Afkoma af vátryggingastarfsemi var í takti við spár og ánægjulegt að sjá að vátryggingastarfsemin heldur sama takti og árið 2016 með 97% samsettu hlutfalli undanfarna 12 mánuði.“ Gert er ráð fyrir að samsetta hlutfallið muni batna og verði um 94 prósent á árinu 2017. Þá segir í tilkynningu TM að fyrstu þrír mánuðir ársins séu yfirleitt tjónaþungir og var samsett hlutfall 106 prósent samanborið við 107 prósent á sama tímabili 2016. Þrátt fyrir að framlegð af vátryggingastarfsemi TM hafi batnað lítillega á milli ára var hún neikvæð um 225 milljónir.Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir að afkoman hafi verið „mjög góð og langt umfram væntingar“. Vísir/StefánTM skilaði um 5,2 prósent ávöxtun á fjárfestingaeignir sínar en það var fyrst og fremst góð afkoma af hlutabréfum sem skýrir mikinn vöxt í fjárfestingatekjum á fjórðungnum. „Þannig var afkoma af óskráðum hlutabréfum góð en að hluta til skýrist það af eignarhlut TM í Kvitholmen. Eins og kom fram í tilkynningu TM til Kauphallar þann 21. febrúar síðastliðinn þá bókfærðust rúmar 300 milljónir á fyrsta fjórðung vegna viðskipta með hluti í Kvitholmen. Þá var afkoma af skráðum hlutabréfum jafnframt mjög góð eða rúm 14%,“ segir í tilkynningu TM.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira