Afi sakaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barnabörnum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. maí 2017 17:00 Brotin eru sögð hafa átt sér stað í um áratug, frá 1997 til 2007 eða 2008. Vísir/Getty
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot gegn þremur barnabörnum hans þegar þær voru 6 til 14 ára gamlar. Brotin eru sögð hafa átt sér stað í um áratug, frá 1997 til 2007 eða 2008. Í ákæru yfir manninum segir að maðurinn hafi nýtt sér yfirburði sína gagnvart stúlkunum og traust þeirra og trúnað til hans sem afa þeirra. Ein stúlkan bjó hjá manninum um tíma þegar stúlkan var sjö til átta ára. Í ákæru segir að maðurinn hafi snert kynfæri stúlkunnar, talað til hennar á ósiðlegan og kynferðislegan hátt og brotið á henni á annan kynferðislegan hátt án þess að hafa við hana samræði. Hafi maðurinn ýmist vakið stúlkuna þar sem hún lá sofandi í rúmi sínu til að brjóta gegn henni eða brotið gegn henni á daginn. Í eitt skiptið er maðurinn sakaður um að hafa brotið gegn stúlkunni en þurft að hætta vegna þess að bróðir stúlkunnar kom í heimsókn. Hótaði hann henni þá að meiða bróður hennar ef hún segði frá. Hótaði hann stúlkunni einnig ítrekað að meiða mömmu hennar ef hún segði frá. Maðurinn er sakaður um að hafa brotið gegn hinum stúlkunum tveimur í lengri tíma, svo til alla grunnskólagöngu þeirra. Sýndi hann þeim klámmyndbönd, fróaði sér fyrir framan þær og hafði við hana „önnur kynferðismök en samræði“. Þá er hann sagður hafa í eitt skipti keyrt aðra stúkuna í sveit og sýnt henni getnaðarlimi á hestum, talað við hana um hversu stórir getnaðarlimir þeirra væru og sýnt henni hesta hafa samræði. Tvær stúlknanna fara fram á miskabætur í málinu og krefjast þær báðar þriggja milljóna króna, auk þess að maðurinn greiði allan málskostnað.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira