Olíuverð lækkað um 11 prósent á síðastliðnum mánuði Sæunn Gísladóttir skrifar 11. maí 2017 07:00 Olíuverð hefur lækkað um 13 prósent á síðastliðnum mánuði. NordicPhotos/Getty
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið skarpt á síðustu vikum og frá því um miðjan apríl hefur verðið lækkað um 11 prósent. Eftir miklar lækkanir að undanförnu tók olíuverð kipp upp á við í gær þegar það hækkaði um meira en þrjú prósent og fór verð á tunnu af Brent-Norðursjávarolíu yfir 50 dollara. Olíuverðslækkun síðustu vikna hefur víðs vegar áhrif hér á landi. Meðal annars spáir greining Arion banka því að hún verði ein af rökunum fyrir því að vextir verði lækkaðir á stýrivaxtafundi í næstu viku. „Þetta hefur áhrif. Olían er mikilvæg í aðföng og aðfangakostnað fyrir fyrirtæki. Þegar olía lækkar í verði getur það hjálpað fyrirtækjum að taka á launahækkuninni sem er að koma inn í maí. Þetta kemur beint inn í vísitölu neysluverðs og hefur þar áhrif til lækkunar og heldur þannig aftur af verðbólguþrýstingi. Þannig að það eru bein og óbein áhrif sem við gætum séð,“ segir Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka. Að hennar mati gæti lækkunin hjálpað útgerðinni. „Ég myndi halda það. Olían er mikilvægur kostnaður hjá útgerðinni. Vissulega ætti þetta því að hjálpa til og vera kærkomið þegar við erum að sjá svona mikla gengisstyrkingu,“ segir Erna Björg. Á meðal þeirra sem hafa notið góðs af lækkun olíuverðs að undanförnu eru flugfélög á borð við í Icelandair Group. Fyrir utan ágætis uppgjör á fyrsta ársfjórðungi og tölur um mikinn vöxt í farþegafjölda í apríl hefur þróun olíuverðs ráðið hvað mestu um að gengi bréfa félagsins hefur hækkað um 22 prósent á síðastliðnum mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira