Aurora Seafood fékk 200 milljónastyrk frá Evrópusambandinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. maí 2017 10:55 Styrkurinn er einnig mikilvægt skref í þá átt að hefja vistvænar veiðar á sæbjúgum víðsvegar um Evrópu, segir í tilkynningunni frá Aurora Seafood. Vísir/Vilhelm
Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Aurora Seafood hlaut í dag 1,7 milljón evra styrk (um 192 milljónir króna.) til að þróa og tæknivæða veiðar og vinnslu á sæbjúgum. Styrkurinn er veittur úr Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins (ESB) og nefnist SME Instrument. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki hlýtur svo háan styrk. Styrkurinn er einnig mikilvægt skref í þá átt að hefja vistvænar veiðar á sæbjúgum víðsvegar um Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aurora Seafood. Davíð Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Aurora Seafood ehf., segir í tilkynningunni að félagið hafi lagt áherslu á að þróa veiðar og vinnslu á sæbjúgum, en Ísland er eina landið í Evrópu þar sem markviss nýting á þeim er stundið. „Styrkurinn er mikilvægur fyrir okkar starf og sýnir jafnframt tiltrú á möguleikum þess að nýta sæbjúgu, ekki bara hér á landi heldur einnig víðar um Evrópu. Ef vel tekst til mun íslensk þekking og frumkvöðlastarfsemi í sjávarútvegi skapa ný tækifæri víðar í Evrópu,“ segir Davíð.Gróska í Íslenska sjávarklasanum Við undirbúning umsóknarinnar til Evrópusambandsins naut Aurora Seafood aðstoðar íslenska ráðgjafafyrirtækisins Evris ehf. og spænska fyrirtækisins Inspiralia. Aurora Seafood ehf. og Evris ehf. eru bæði með aðsetur í Íslenska sjávarklasanum og gott dæmi um hið gróskumikla samstarf sem þar fer fram. Aurora Seafood starfrækir skipið Klett ÍS 808 sem er 29 metra langt skip sem er sérstaklega útbúið til veiða á sæbjúgum. Innan félagsins starfa Kári P. Ólafsson og Bergur Garðarson sem voru brautryðjendur að nýtingu sæbjúgna árið 2003. Markmið Horizon 2020 er að styðja við rannsóknir og nýsköpun á öllum sviðum vísinda og fræða með það að leiðarljósi að auka samkeppnishæfni Evrópu, skapa góð störf, stuðla að því að fleiri góðar hugmyndir komist á markað og skapi þar með samfélaginu arð með sjálfbærni að leiðarljósi. Nánar um 2020 Horizion. SME Instrument er tveggja þrepa umsóknaferli en árangur Aurora Seafood ehf. er einstakur því umsóknir fyrirtækisins hlutu brautargengi í fyrstu atrennu í báðum þrepum. Því liðu aðeins níu mánuðir frá því að umsókn um fyrsta þrep var send inn þar til hinn stóri styrkur var í höfn.
Mest lesið Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira