Sjóður Gamma lánar fyrir íbúðakaupum Haraldur Guðmundsson skrifar 3. maí 2017 07:00 Framtíðin hyggst veita viðbótarlán á bilinu ein til átta milljónir króna. Vísir/Anton Brink
Lánasjóðurinn Framtíðin, sem er fjármagnaður í gegnum skuldabréfasjóði í stýringu hjá fjármálafyrirtækinu Gamma, hefur fengið leyfi Fjármálaeftirlitsins (FME) til að bjóða fasteignalán. Sjóðurinn hefur boðið námslán síðustu tvö ár og bætast nú við viðbótarlán vegna íbúðarkaupa með verðtryggðum vöxtum sem ráðast af því hversu mikið eigið fé lántakandinn leggur til. „Við fengum skráningu sem lánveitandi hjá FME þann 1. apríl eða sama dag og ný lög um fasteignalán til neytenda tóku gildi. Henni fylgir ákveðin upplýsingaskylda og við þurfum að senda FME skýrslur mánaðarlega. Á heimasíðu okkar verður reiknivél þar sem hægt verður að slá inn ýmsar forsendur og sjá hvaða vextir eru í boði. Þeir ráðast af markaðskjörum og geta verið breytilegir,“ segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar.Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar.Fyrirtækið ætlar að bjóða „sérsniðna vexti“ sem lækka eftir því hversu mikið eigið fé er lagt fram í hlutfalli við verð fasteignar. Um er að ræða viðbótarlán, til að hámarki 25 ára á öðrum eða þriðja veðrétti, frá einni og upp í átta milljónir króna. Ekki verður lánað fyrir kaupum á eignum sem kosta meira en 55 milljónir. Hrólfur segir lánin koma til með að henta þeim sem eiga ekki fyrir útborgun í íbúð. Aðspurður svarar hann að þau muni einungis gera lántakendum kleift að skuldsetja sig um sem nemur 90 prósentum af verði fasteigna. Fyrirtækið muni bjóða samkeppnishæfa vexti en markmið laganna sem Hrólfur vísar til er jafnframt að stuðla að ábyrgum lánveitingum og sporna við óhóflegri skuldsetningu neytenda. „Og við munum fara sérstaklega yfir verð í kaupsamningi til að fullvissa okkur um að um markaðsverð sé að ræða. Við erum nýr aðili á fjármálamarkaði og erum alfarið á netinu. Við sjáum mikil tækifæri fram undan en það eru búnar að vera miklar breytingar á þessum markaði undanfarið og verða enn þá meiri á næstu misserum. Það er enginn annar að bjóða eingöngu þessi viðbótarlán eins og stendur og það er okkar nálgun að bjóða eitthvað nýtt.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira