Erlendir stjórnarmenn borga tekjuskatt á Íslandi af milljarða bónusum Hörður Ægisson skrifar 3. maí 2017 08:00 Fimm íslenskir starfsmenn munu fá rúmlega fjórðung af samtals um 2.700 milljóna bónusgreiðslum Glitnis.
Þrír erlendir stjórnarmenn Glitnis HoldCo, eignarhaldsfélags sem var stofnað á grunni eigna slitabús Glitnis banka í kjölfar nauðasamninga í árslok 2015, munu allir þurfa að greiða tekjuskatt á Íslandi af um 1.800 milljóna króna bónusgreiðslum sem er áætlað að þeir fái samanlagt í sinn hlut. Þetta kemur fram í fundargerð aðalfundar Glitnis sem var haldinn 26. apríl síðastliðinn og Markaðurinn hefur undir höndum. Þá segir einnig í fundargerðinni, í tengslum við skriflegt svar við fyrirspurn sem var lögð fyrir stjórnina í aðdraganda aðalfundar, að auk erlendu stjórnarmannanna séu fimm íslenskir starfsmenn hluti af hinu umfangsmikla bónuskerfi Glitnis sem var samþykkt á aðalfundi félagsins í mars í fyrra. Glitnir hyggst greiða þessum hópi starfsmanna – samtals átta manns – um 23 milljónir evra, jafnvirði um 2,7 milljarða króna, í bónusa, eins og upplýst var um í Markaðnum í síðustu viku.Ingólfur Hauksson er forstjóri Glitnis.Bróðurparturinn af þeirri fjárhæð, eða um 74 prósent, rennur í skaut stjórnarmanna Glitnis og munu greiðslur og launatengd gjöld félagsins að óbreyttu nema um tveimur milljörðum vegna bónusa til þeirra. Fram kemur í fundargerðinni að launatengd gjöld nemi um tíu prósentum af þeirri heildarfjárhæð sem hefur verið bókfærð í ársreikningi vegna áætlaðra bónusgreiðslna. Stjórnarmennirnir geta því vænst þess að fá að meðaltali á mann um 600 milljónir og skattgreiðslur til ríkisins vegna þeirra bónusa munu nema hundruðum milljóna. Afgangurinn af bónuspotti Glitnis fer sem fyrr segir til fimm íslenskra starfsmanna félagsins en að frádregnum launatengdum gjöldum munu þær greiðslur nema samtals um 630 milljónum. Íslenskir stjórnendur Glitnis sem munu þar fá hlutfallslega mest í sinn hlut eru Ingólfur Hauksson, forstjóri félagsins, Snorri Arnar Viðarsson, forstöðumaður eignastýringar, og Ragnar Björgvinsson aðallögfræðingur. Bónusar til íslenskra starfsmanna eru skattlagðir eins og launatekjur og þurfa þeir því að greiða 46,24 prósenta tekjuskatt af þeim greiðslum. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira