Marel hagnast um 2,5 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 3. maí 2017 16:20 Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir árið byrja vel hjá félaginu. Vísir/Valli
Hagnaður Marels á fyrsta ársfjórðungi nam 21,3 milljónum evra, eða tæpum 2,5 milljörðum króna. Um er að ræða töluverða aukningu en hagnaðurinn nam 13,8 milljónum evra á sama tímabili í fyrra. Fram kemur í tilkynningu að tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 252,5 milljónum evra, 29 milljörðum króna, sem er örlítil aukning milli ára. EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2017 var 46,0 milljónir evra sem er 18,2 prósent af tekjum og um 8 milljón evra aukning milli ára. Pro forma EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2016 nam 42,5 milljónum evra eða 18,2 prósent af tekjum. Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 37,9 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2017 og jókst um 10 milljónir evra milli ára. Pantanabókin stóð í 390,3 milljónum evra við lok fyrsta ársfjórðungs 2017 samanborið við 349,5 milljónir evra í lok fjórða ársfjórðungs 2016. Fram kemur í tilkynningu að nýjar pantanir á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 293 milljónum evra sem dreifast vel á milli kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaða auk þess að vera vel dreifðar á milli vöruflokka og heimsálfa. Pantanabókin stendur í 390 milljónum evra og hefur aldrei verið stærri. Til samanburðar var pantanabókin 340 milljónir evra á sama tíma fyrir ári síðan. Fjárhagsstaða félagsins er traust og sjóðsstreymi sterkt. Á fyrsta ársfjórðungi 2017 samþykkti aðalfundur Marel að greiða hluthöfum arð og að kaupa eigin bréf fyrir samtals 22,1 milljónir evra. Marel hefur tryggt framlengingu á fjármögnun félagsins á hagstæðum kjörum sem endurspegla fjárhagslegan styrk Marel og markaðsaðstæður. Fjármögnunin nemur um 640 milljónum evra á vaxtaálaginu EURIBOR/LIBOR + 185 bps, sem mun breytast með skuldsetningarhlutfalli félagsins við lok hvers ársfjórðungs. Lokagjalddagi fjármögnunarinnar er í maí 2022. Þessar breytingar auka sveigjanleika í rekstri og styðja við metnaðarfulla áætlun félagsins um vöxt og virðisaukningu til lengri tíma litið sem kynnt var á aðalfundi félagsins í mars síðastliðnum.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira