Metfjölgun starfa en fækkaði hjá hinu opinbera Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. apríl 2017 11:13 Ferðamenn kynna sér skreið í Hafnarfirði en störfum fjölgaði einmitt mest í ferðaþjónustu á síðasta ári. Vísir/Vilhelm
Fjöldi starfa hjá hinu opinbera dróst saman á síðasta ári meðan launþegum fjölgaði um 5% á milli ára. Þetta er meðal þess sem greint er frá í nýrri Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans sem kom út í morgun. Meðalfjöldi launþega hér á landi var rúm 180 þúsund á síðasta ári og fjölgaði þeim um 8.500 frá fyrra ári. Fjölgunin nemur um 5% sem er „ umtalsvert meiri fjölgun starfa hlutfallslega séð en verið hefur síðustu ár,“ eins og það er orðað.Ferðaþjónustan fyrirferðamikil sem fyrrUm 44% af fjölgun launþega á síðasta ári segir hagfræðideildin að skýrist af fjölgun starfa í greinum sem snúa að íslenskri ferðaþjónustu. Alls fjölgaði störfum í ferðaþjónustugreinum um tæplega 3.800 og var fjölgunin 18,5% milli ára. Mannvirkjagerð og byggingarstarfsemi (16,5%) sem og heild- og smásala (12%) lögðu einnig sitt af mörkum í heildarfjölgun starfa. Hagfræðideildin segir það „athyglisvert að sjá að í þeirri miklu starfafjölgun sem varð á síðasta ári dróst fjöldi starfa hjá hinu opinbera saman um 8 stöðugildi“ en árið í fyrra var það fyrsta í fjögur ár þar sem launþegum hjá hinu opinbera fækkar milli ára. Fækkunin skýrist af fækkun í fræðslustarfsemi og opinberri stjórnsýslu en þar fækkaði störfum um 267 eða um sem nemur 0,6%. Störfum í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu fjölgaði hins vegar um 258 eða 1,7%. Hagsjá Landsbankans má nálgast hér.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira