Fleiri hross út þrátt fyrir styrkingu krónunnar Sveinn Arnarsson skrifar 26. apríl 2017 07:00 Daníel Jónsson á Landsmóti hestamannafélaga árið 2016. Margur gæðingurinn hefur farið utan sem hann hefur handleikið
Þrátt fyrir styrkingu krónunnar hefur útfluttum hrossum fjölgað síðustu þrjú ár. Vel gengur að selja hross út að sögn útflytjenda en krónan klípur stóran hluta af hagnaðinum sem verður til. Í fyrra voru tæp 1.500 hross flutt úr landi. Er það um 200 hrossa fjölgun frá árinu 2014. Mest selst til útlanda af hryssum en einnig eru um 500 geldingar fluttir út árlega. Graðhestum hefur síðan fjölgað rólega ár frá ári og um 233 graðhestar fóru utan á síðasta ári. Hulda Gústafsdóttir, hestamaður og útflytjandi, segir hrossasölu til útlanda vera að ná fyrri styrk hvað fjölda hrossa varðar. Hins vegar er það svo að krónan leiki greinina grátt líkt og aðrar útflutningsgreinar. „Við erum að sjá að frá því í byrjun árs 2016 hefur krónan styrkst um 20-25 prósent og það er gríðarlega erfitt að eiga við það. Þetta er auðvitað tekjutap sem því nemur og erfitt fyrir greinina í heild,“ segir Hulda. „Þeir sem eru harðir á því að fá sama verð fyrir hrossin sín og fyrir gengisstyrkingu eiga í miklum erfiðleikum með að selja hross.“ Hins vegar sýnir þetta að mati Huldu að íslenski hesturinn, fæddur, alinn og taminn hér á landi, er eftirsótt vara en mikilvægt sé að Íslendingar séu samkeppnishæfir í verði. „Það er gífurlegur fjöldi íslenskra hesta erlendis og ef við erum ekki samkeppnishæf þá töpum við slagnum mjög fljótt,“Hestamennska skilar árlega milljörðum í ríkissjóð hvort sem um ræðir ferðaþjónustu, störf tengd tamningum og þjálfun, eða sem ferðaþjónustugrein. Sveinn Steinarsson, formaður fagráðs í hrossarækt, segir mikilvægt að gengið nái jafnvægi sem fyrst. „Ef fram heldur sem horfir gætu hlutir þróast á neikvæðan hátt,“ segir Sveinn. Mikil tækifæri eru í hestamennsku en verðin sem við fáum fyrir hross eru í lægri kantinum. Menn slá af verðum til að halda útflutningnum gangandi.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira