Setur upp sýningu á gamla berklahælinu Sæunn Gísladóttir skrifar 10. apríl 2017 07:00 María Pálsdóttir segir að stefnt sé að opnun í maí 2018 á Kristnesi. vísir/ernir „
Þetta er þannig að ég ætla að opna í maí 2018 setur um sögu berklanna, annars vegar sýningu og hins vegar kaffihús sem verður í anda fjórða áratugar síðustu aldar. Þetta verður á Kristnesi sem er dásamlegur staður, tíu kílómetra sunnan við Akureyri. Þar var annað berklahæli landsins reist árið 1927,“ segir María Pálsdóttir, leikkona og frumkvöðull. „Þetta eru æskustöðvarnar mínar. Hugmyndin kviknaði þegar ég var að rölta þarna um og sá hvernig hlutirnir voru aðeins að drabbast niður. Ég ákvað að gera eitthvað í málunum,“ segir María. Hún segir sögu berklana einstaklega merkilega og er hún búin að sökkva sér ofan í hana síðastliðið árið. „Þetta er stórmerkilegur tími og svakalegur sjúkdómur sem geisaði hérna snemma á 20. öldinni. Engin lyf voru til fyrr en upp úr miðri öldinni. Fólk var tekið og sett í einangrun, margir voru ungir og vissu ekki hvort þeir næðu þrítugs aldri,“ segir María.Sjúklingur á Kristneshæli á síðustu öld.Mynd/AðsendSýningin mun vera upplifunartengd. „Ég vil hafa þetta meira eins og leikhús, að fólk gangi inn í einhvern heim. Það verða sjónrænar lausnir, myndir, myndupptökur, og hljóðheimur. Markmiðið er að fræða fólk um þennan sjúkdóm og segja þessar persónulegu sögur sem eru margar magnaðar,“ segir María. Hún hefur stofnað Facebook-síðu í kringum setrið og biðlar til fólks sem hefur áhugaverða sögu að segja af ættingjum með berkla, eða á ljósmyndir eða muni frá berklatímanum, að hika ekki við að senda skilaboð. „Mér eru endalaust að berast ábendingar og það er dásamlegt, þetta tengist eiginlega inn í allar fjölskyldur landsins.“ María tekur þátt í viðskiptahraðlinum Startup Tourism um þessar mundir, en þeim tíu vikna hraðli lýkur í lok mánaðarins. Hún segir það mjög gott að hafa aðgang að öðrum í sömu sporum, sem og leiðbeinendunum sem koma að hraðlinum. „Við erum öll með margar sömu spurningarnar og svipuð vandamál til að leysa. Ég er búin að hitta fullt af frábæru fólki sem er búið að hjálpa mér.“ María leitar nú eftir fjárfestum inn í verkefnið en þann 28. apríl stendur Startup Tourism að opnum fjárfestadegi þar sem hægt verður að hlusta á kynningar allra teymanna.María Pálsdóttir að setja sig í spor hjúkrunarkonu frá tímabilinu.Mynd/Aðsend
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira