Þorlákshöfn nú tengd beint við Rotterdam Svavar Hávarðsson skrifar 8. apríl 2017 06:00 Mykines mun koma til Þorlákshafnar vikulega með vörur. Mynd/SLC
Beinar siglingar færeyska skipafélagsins Smyril Line Cargo milli Íslands og Evrópu eru hafnar og kom vöruflutningaferjan Mykines til hafnar í Þorlákshöfn í fyrsta sinn í gær. Vegna flutninganna hefur sveitarfélagið Ölfus ráðist í hafnarbætur í Þorlákshöfn. Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi, segir að farmur Mykiness í þessari fyrstu ferð séu mest bifreiðar, vinnutæki og stórar vélar, ásamt byggingarefni og neytendavörum. Með skipinu til baka til Rotterdam verða mestmegnis fluttar út sjávarafurðir. „Mykinesið hefur hreppt alls konar veður á leiðinni, en hefur sannað að það er gott sjóskip. Allar áætlanir okkar hafa staðist og þetta er gleðilegur dagur fyrir okkur,“ segir Linda Björk sem finnur fyrir því að markaðurinn sé að bregðast við nýjum kosti í flutningum og samkeppninni sem honum fylgir.Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi.„Löndunum í Þorlákshöfn hefur fjölgað og umsvif í höfninni hafa aukist. Við erum búin að gera samninga við fyrirtæki í bænum til að vinna með okkur,“ segir Linda og nefnir Kuldabola, sem rekur frystivöruhótel og Fiskmarkað Íslands. Ákveðið hefur verið að halda úti vikulegum siglingum milli Þorlákshafnar og Rotterdam, en þó einungis boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni. Fest voru kaup á ferjunni Mykines sérstaklega vegna verkefnisins. Ferjusiglingarnar munu stórauka umsvif í Þorlákshöfn og væntingar eru um að þær stuðli að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Horft er til þess að nýja siglingaleiðin skapi einnig tengimöguleika við önnur markaðssvæði, til dæmis Pólland og Eystrasaltslöndin, með vöruumskipun í Færeyjum þaðan sem Smyril Line Cargo er með tvær vöruflutningaferjur í áætlunarsiglingum til St. Pétursborgar og Eystrasaltslandanna. Miklar breytingar hafa verið gerðar á höfninni í Þorlákshöfn á undanförnum árum til að skapa betri aðstæður fyrir hafsækna starfsemi og frekari framkvæmdir eru á döfinni. Höfnin hefur verið dýpkuð til muna og byggð verður upp aðstaða til að taka á móti stórum flutningaskipum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira