Ólafur fékk nei frá Hæstarétti vegna Al-Thani Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. mars 2017 11:38 Ólafur Ólafsson fjárfestir Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kröfu Ólafs Ólafssonar fjárfestis gegn ríkissaksóknara og íslenska ríkinu. Fór Ólafur fram á að viðurkennt yrði að skilyrði fyrir endurupptöku á Al-Thani málinu væru uppfyllt. Málið snerist um kaup félags sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani á um fimm prósenta hlut í Kaupþingi fyrir 26 milljarða króna í lok september 2008. Kaupin voru fjármögnuð með láni frá bankanum. Ólafur fékk þriggja og hálfs árs dóm í héraði en dómurinn var þyngdur í fjögur og hálft ár í Hæstarétti. Kaupþingstopparnir Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson hlutu sömuleiðis þunga fangelsisdóma í málinu. Endurupptökunefnd hafnaði beiðni Ólafs um endurupptöku málsins í ársbyrjun 2016. Krafðist Ólafur fyrir dómstólum að úrskurður nefndarinnar yrði felldur úr gildi og viðurkennt yrði að skilyrði fyrir endurupptöku væru uppfyllt. Á móti krafðist ríkissaksóknari og íslenska ríkið að málinu yrði vísað frá. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að vísa frá dómi kröfu Ólafs er varðar viðurkenningu á skilyrði fyrir endurupptöku. Staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð. Að öðru leyti var frávísunarkörfu ríkisins og ríkissaksóknara hafnað og er sá angi málsins enn til meðferðar hjá dómstólum. Lesa má nánar um dóminn á vef Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Ólafur stefnir íslenska ríkinu Ólafur Ólafsson fjárfestir hefur stefnt embætti ríkissaksóknara og íslenska ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. 16. október 2016 18:30 Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs Ólafssonar um endurupptöku Al Thani-málsins Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni Ólafs Ólafssonar sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs langt fangelsi í Al Thani-málinu um að málið verði tekið upp aftur. 9. febrúar 2016 11:28 Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
Ólafur stefnir íslenska ríkinu Ólafur Ólafsson fjárfestir hefur stefnt embætti ríkissaksóknara og íslenska ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. 16. október 2016 18:30
Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs Ólafssonar um endurupptöku Al Thani-málsins Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni Ólafs Ólafssonar sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs langt fangelsi í Al Thani-málinu um að málið verði tekið upp aftur. 9. febrúar 2016 11:28