Hæstiréttur vísaði 186 milljóna skaðabótamáli 66°Norður frá Haraldur Guðmundsson skrifar 23. mars 2017 16:42 Molden Enterprises, áður Egus Inc. var áður stærsti hluthafi 66°Norður. Vísir/Stefán
Hæstiréttur vísaði í dag máli frá héraðsdómi þar sem maltverska félagið Molden Enterprises Limited hafði verið dæmt til að greiða 66°Norður (Sjóklæðagerðinni hf.) alls 186 milljónir króna. Molden var dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars í fyrra til að greiða fataframleiðandanum vegna dómsmáls sem fyrrverandi forstjóri 66°Norður höfðaði gegn því og vann. Hæstiréttur vísaði dómnum frá því í mars frá og tók undir með lögmanni Molden Enterprises um að 66°Norður gæti ekki nýtt sér varnarþingsákvæði kaupsamnings sem undirritaður var í júní 2011 og stefnt maltverska félaginu hér á landi. Félagið SF II, í eigu núverandi eigenda 66°Norður, hefði aftur á móti verið aðili að þeim samningi þegar það keypti 51 prósent í fataframleiðandanum af Molden. Í kaupsamningum var ákvæði um að ef kæmi upp ágreiningur bæri Molden og SF II skylda til að reka mál vegna hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri og einn eigenda 66°Norður, hafði ekki kynnt sér dóm Hæstaréttar þegar blaðamaður náði tali af honum.„Stefndi [66°Norður] var ekki aðili að ofangreindum kaupsamningi, þótt samningurinn hafi varðað hagsmuni hans og áfrýjandi [Molden Enterprises] hefur ekki fyrir sitt leyti gengist undir að mál á hendur sér um þá hagsmuni stefnda verði rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Verður áfrýjanda því ekki gert að sæta því að stefndi reki fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur mál á hendur honum um hagsmuni sína í skjóli varnarþingsákvæðis umrædds kaupsamnings,“ segir í dómi Hæstaréttar. 66°Norður höfðaði málið á sínum tíma á þeirri forsendu að Molden, sem hét áður Egus Ing. og var á þeim tíma í eigu kvikmyndaframleiðandans Sigurjóns Sighvatssonar, hefði lofað að greiða félaginu kostnað vegna starfsloka Halldórs Gunnars Eyjólfssonar, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. Í kaupsamningi Molden og SF II hafi verið ákvæði um að fyrrnefnda félagið ábyrgðist að kaupréttur sem Halldór átti samkvæmt ráðningarsamningi væri fallinn úr gildi í júní 2011. Ef til málaferla um kaupréttinn kæmi myndi maltverska félagið bæta íslenska fyrirtækinu allan kostnað sem væri umfram það sem leiddi af uppgjöri ráðningarsamnings forstjórans. Halldór Gunnar höfðaði mál á hendur 66°Norður í mars 2012 og rúmum tveimur árum síðar staðfesti Hæstiréttur að fyrirtækið þyrfti að greiða honum 110 milljónir vegna kaupréttarins. Lögmenn Molden önnuðust málareksturinn í nafni 66°Norður í samræmi við ákvæði kaupsamningsins.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira