Þóknanir hlaupa á þremur milljörðum Sæunn Gísladóttir skrifar 18. mars 2017 07:00 Veltan hljóp á 193 milljörðum króna.
Með hækkandi fasteignaverði hefur þóknun sem greiðist til fasteignasala landsins farið hækkandi. Á síðustu sex mánuðum má áætla að þóknun til fasteignasala á höfuðborgarsvæðinu hafi numið um þremur milljörðum króna. Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala, telur að miðað við hve margir vinni í faginu sé þetta þó ekki há tala. Sökum fárra eigna sé nú samdráttur í sölu hjá mörgum fasteignasölum. Frá september til febrúarloka nam fjöldi kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4.210 samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Á tímabilinu nam veltan 193,2 milljörðum króna og var því meðalsamningur metinn á 45,9 milljónir. Að jafnaði nemur þóknun til fasteignasala um 1,5 prósentum af kaupverði og má því á ætla að 2.897,9 milljónir króna hafi verið greiddar í þóknun á tímabilinu. Tæplega nítíu fasteignasölur starfa á höfuðborgarsvæðinu og má því áætla að hver fasteignasala hafi að jafnaði fengið 32,2 milljónir í þóknun á tímabilinu, eða rúmlega fimm milljónir á mánuði.Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala. Mynd/EignamiðlunKjartan Hallgeirsson telur að miðað við hve margir vinni í faginu sé þetta ekki há tala. „Dreifingin er ansi mikil á þessum þóknunum, ef þú skoðar þetta sem tímagjald þá eru þetta aldrei háar tölur." Kjartan segir að þóknanir vegna lítilla eigna hafi hækkað umtalsvert undanfarin misseri. Þóknanir hafa verið hærri samhliða aukinni veltu, en sökum færri eigna á sölu undanfarna mánuði hafi þær dregist saman. Kjartan segir að áhrif þess muni birtast í veltutölum Þjóðskrár Íslands á næstu mánuðum. „Þetta tengist auðvitað bara veltu þannig að þegar er meiri velta eru auðvitað hærri þóknanir. En þetta er eins og fiskiskip sem siglir áfram, stundum ertu að fá meiri afla og stundum minni og það þarf að fá jafnvægi.“ „Það eru miklu færri eignir að seljast núna, þannig að það er samdráttur í sölu hjá fasteignasölum. Þó að sé auðvelt að selja eru færri eignir til sölu og fjöldi fasteignasala til staðar og þar af leiðandi eru tekjurnar minni fyrir þá sem eru að vinna í þessu.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira