Ógnaði nágrönnum sínum í Hamraborg með sveðju Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. mars 2017 13:21 „Við metum manninn hættulegan og þess vegna fengum við sérsveitina með okkur,“ segir Gunnar Hilmarsson. vísir/gva
Lögregla og sérsveit voru kölluð til um klukkan hálf tíu í gærkvöldi vegna manns sem hafði haft í hótunum við nágranna sína í Hamraborg í Kópavogi. Maðurinn var vopnaður sveðju eða hnífi og er talinn hættulegur fólki, að sögn Gunnars Hilmarssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Kópavogi. RÚV greindi fyrst frá. Íbúar í Hamraborg óskuðu eftir aðstoð lögreglu á tíunda tímanum í gær. Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn stunginn af en skömmu síðar fréttist af honum á veitingastað í nágrenninu þar sem hann er sagður hafa hótað fólki og krafist þess að fá áfengi. Maðurinn var svo handtekinn heima hjá sér, í Hamraborg, um klukkan hálf ellefu. „Við höfum farið þangað margoft áður út af þessum manni. Við metum manninn hættulegan og þess vegna fengum við sérsveitina með okkur,“ segir Gunnar Hilmarsson í samtali við Vísi. Gunnar segir að búið sé að yfirheyra manninn og að nú verði fundin lausn fyrir hann í samvinnu við félagsmálayfirvöld. Maðurinn býr í félagsíbúð og glímir við geðræn vandamál ásamt því sem hann er talinn vera í mikilli óreglu. Aðspurður segir Gunnar að maðurinn hafi áður hótað nágrönnum sínum en veit ekki til þess að hann hafi áður gert það með vopni.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Sjá meira