Vongóður um að sjómenn samþykki einn besta samning sem þeir hafa fengið Ásgeir Erlendsson skrifar 19. febrúar 2017 13:38
Formaður Sjómannasambands Íslands segir kynningar á nýgerðum kjarasamningi hafa gengið vel og hann vonist til að samningurinn verði samþykktur. Hann segir samninginn einn þann besta sem sjómenn hafi gert. Flest aðildarfélög Sjómannasambandsins kynntu nýgerðan kjarasamning fyrir félagsmönnum sínum í gær og einhver félög standa fyrir kynningu í dag. Kosning um samninginn mun standa yfir til sex og gert er ráð fyrir að talning hefjist í húskynnum ríkissáttasemjara um kvöldmatarleytið. Úrslit kosninganna verða svo gerð kunn á níunda tímanum í kvöld. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, vonast til að samningurinn verði samþykktur. „Eftir því sem að ég best veit þá held ég að það hafi gengið mjög vel. Ég var aðeins að hlera menn í gærkvöldi hvernig hefði gengið og almennt heyrist mér að það hafi gengið vel að kynna samninginn.“Hvernig er hljóðið í sjómönnum eftir þessar kynningar?„Það er svona bæði og finnst mér en mér finnst ég samt heyra fleiri jákvæðar raddir. Maður er bjartsýnn á að sjómenn samþykki þennan samning.“Einn besti samningur sem sjómenn hafi fengiðValmundur segir stóran áfanga hafa náðst með því að hafa tekist að hreyfa við olíuverðsviðmiði í frá fyrri samningi sem felldur var auk þess sem miklu muni að fæði verði endurgjaldslaust og útgerðin útvegi öryggis- og hlífðarfatnað. Samningurinn sé einn sá besti sem sjómenn hafi gert: „Ég man ekki eftir svona samningi áður. Alveg frítt fæði, frír vinnufatnaður, internetkostnaður og svo koma bókanirnar í samningnum sem eru mikils virði. Að taka þennan kjarasamning okkar upp á nýtt og gera algjörlega nýjan samning. Það verður gert undir verkstjórn ríkissáttasemjara sem skipar okkur til verka sem eigum að sjá um þetta. Verði samningurinn samþykktur geta skip haldið úr höfn á miðnætti. Spjallið við Valmund má heyra hér að ofan.
Tengdar fréttir Væntanlega ófær um að ná saman verði samningarnir felldir Það væri ömurlegt ef samningur sjómanna og útgerðarinnar yrði felldur að mati framkvæmdastjóra SFS 19. febrúar 2017 12:15 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira
Væntanlega ófær um að ná saman verði samningarnir felldir Það væri ömurlegt ef samningur sjómanna og útgerðarinnar yrði felldur að mati framkvæmdastjóra SFS 19. febrúar 2017 12:15