Fjárfestar kaupa eignir í Eyjum af miklum móð 22. maí 2017 07:00 Fasteignafélög veðja greinilega á hækkandi verð með bættum samgöngum. vísir/óskar p. friðriksson
Færst hefur í aukana síðustu vikur að stór fasteignafélög kaupi upp fasteignir í Vestmannaeyjum og veðji þannir á hækkandi fasteignaverð samfara bættum samgöngum til og frá Eyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir fjárfesta hafa mikla trú á áhrifum nýrrar Landeyjahafnar. „Við á landsbyggðinni vitum sem er að í hvert skipti sem samgöngur lagast þá hækkar fasteignaverð,“ segir Elliði.Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.„Við sjáum það hér í Eyjum mjög glöggt í tengslum við gerð Landeyjahafnar. Ég get staðfest að hafa orðið var við að stór félög séu að kaupa upp fasteignir í Eyjum. Þeir hafa þá líklega meiri trú á því að verðið muni hækka en heimamenn.“ Guðjón Hjörleifsson, fasteignasali í Vestmannaeyjum, hefur sömu sögu að segja og Elliði og staðfestir að á annan tug fasteigna hafi á stuttum tíma farið til fasteignafélaga. Stór fyrirtæki fái lánað hjá Íbúðalánasjóði á sömu vöxtum og almenningur til langs tíma. Eignamyndun félaganna sé hraðari á stöðum eins og Vestmannaeyjum en í Reykjavík til að mynda. „Jú, ég hef verið að selja íbúðir til fasteignafélaga í Eyjum sem ætla sér að leigja út eignirnar í einhvern tíma þar til fýsilegt verður að selja. Það er mjög áhugavert að sjá þennan viðsnúning því þetta er eitthvað sem við höfum ekki séð mikið af hér í Eyjum,“ segir Guðjón. „Menn fá hér eignir á góðu verði þar sem atvinnulíf er með ágætum og svo veðja menn líklega á að verðið hækki með bættum samgöngum.“ Elliði segir það mikilvægt að heimamenn sjái líka tækifærið í auknum samgöngum við Landeyjahöfn og haldi ekki að sér höndum. „Fjárfestar kaupa núna bæði íbúðir og hús sem þeir ætla að leigja og selja áfram. Því gæti verið sniðugt að fjárfesta nú áður en verð hækkar í Eyjum. það hefur margsýnt sig að verð fasteigna fer upp um leið og samgöngur batna,“ segir bæjarstjórinn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira