Lilja Björk ráðin bankastjóri Landsbankans Stefán Árni Pálsson skrifar 23. janúar 2017 16:57 Lilja hefur störf í mars.
Lilja Björk Einarsdóttir, 43 ára verkfræðingur, hefur verið ráðin bankastjóri Landsbankans. Lilja mun hefja störf 15. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003. Lilja er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður í fyrirtækjum. Á árunum 2008 til 2016 stýrði Lilja starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu. Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, segir í tilkynningunni: „Bankaráð Landsbankans býður Lilju hjartanlega velkomna til starfa. Við teljum að reynsla og þekking hennar muni nýtast bankanum afar vel. Staða Landsbankans er traust og hann hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Miklar áskoranir eru í rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um þessar mundir og samkeppnin er hörð. Lilja er öflugur leiðtogi sem við treystum til að stýra Landsbankanum af festu og bæta enn frekar rekstur hans og afkomu. Stefna bankans er skýr. Landsbankinn er samherji viðskiptavina sinna, hann starfar í sátt við samfélagið og vill vera til fyrirmyndar.“ Steinþór Pálsson lét af störfum sem bankastjóri Landsbankans í lok nóvember eftir að skýrsla ríkisendurskoðunnar var birt þar sem eignasala bankans var harðlega gagnrýnd.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira