Rússar gætu líka verið í banni á næstu Ólympíuleikum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2017 10:00 Frá keppni á ÓL í Sochi 2014. Vísir/Getty
Rússneskir íþróttamenn gætu verið útilokaðir frá keppni á næstu Vetrarólympíuleikum og Vetrarólympíumóti fatlaðra sem fara fram í Pyeongchang í Suður-Kóreu eftir rúmt ár. Rússar urðu uppvísir að því að skipuleggja ólöglega lyfjagjöf íþróttamanna sinna og hjálpa sínu óhreina íþróttafólki að sleppa í gegnum lyfjaeftirlit. McLaren-skýrslan fjallaði ítarlega upp málið og úr varð eitt mesta lyfjahneyksli íþróttasögunnar. Rússneskir frjálsíþróttamenn máttu ekki taka þátt í Ólympíuleikunum í Ríó og fjöldi rússneska íþróttamanna úr öðrum greinum voru líka útilokaðir frá keppni. Rússar voru í algjöru banni frá Ólympíumóti fatlaðra á síðasta ári eftir að stjórn Ólympíunefndar fatlaðra kaus samhljóða um að banna þátttöku þeirra í Ríó 2016. Sir Philip Craven, forseti Alþjóðlegu Ólympíunefndar fatlaðra, segir að slíkt bann gæti mögulega verið áfram í gildi á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Pyeongchang. Caven talar einnig um það að afrek Rússa frá því á síðustu Vetrarólympíuleikum í Sochi hafi fölnað eftir rússneska lyfjahneykslið en McLaren-skýrslan fjallaði meðal annars um svikamyllu Rússa í tengslum við Ólympíuleika þeirra í Sochi. „Ég veit ekki hvað gerist og ég er ekki sá eini sem veit það ekki. Ég er ekki að bíða eftir því að einhver segi fyrirgefðu heldur komum þessu bara í lag,“ sagði Sir Philip Craven. McLaren-skýrslan greindi frá því að Rússar hafi átt við lyfjapróf sinna íþróttamanna með það markmið að hjálpa þeim að standast lyfjapróf. Alls áttu að hafa verið „eyðilögð“ hundrað þvagsýni sem höfðu án afskipta sýnt ólöglega lyfjanotkun rússneska íþróttafólksins. Rússar unnu alls 33 verðlaun þar af 13 gull á Vetrarólympíuleikunum í Sochi en rannsókn á 28 rússneskum íþróttamönnum á leikunum gæti þýtt að Rússa myndu missa í það minnsta tólf verðlaun á leikunum. Komi hið versta í ljós er ljóst að Rússar þurfa að taka afleiðingum svika sinna og því verður að teljast líklegt að þetta kosti þá einnig bann frá Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang 2018. Rannsóknarmenn halda áfram að velta upp steinum í þessu ljóta máli og því má búast við að rússneska lyfjahneykslið muni halda áfram að stela fyrirsögnunum fram að leikunum Pyeongchang sem hefjast 9. Febrúar 2018.Á fimmtudaginn stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur fyrir ráðstefnu um lyfjamál kl.17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík. Þrír áhugaverðir fyrirlesarar halda tölu, meðal annars fyrrverandi Tour de France hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen sem hefur viðurkennt stórfellda lyfjamisnotkun á meðan á ferlinum stóð. Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér.
Ólympíuleikar Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Vetrarólympíuleikar 2018 í PyeongChang Tengdar fréttir Rússneskur Ólympíumeistari missir gullið sitt Tatyana Lysenko á yfir höfði sér lífstíðarbann frá frjálsíþróttum eftir að falla á lyfjaprófi öðru sinni. 12. október 2016 11:00 Rússar enn úti í kuldanum Alþjóða frjálsíþróttasambandið, IAAF, hefur ákveðið að framlengja bann Rússa frá alþjóðakeppnum í frjálsum íþróttum. 2. desember 2016 09:00 Putin: Ólympíugull ekki eins merkilegt afrek þegar það vantar Rússana Vladimir Putin, forseti Rússlands, hitti Ólympíulið Rússa í dag og hélt um leið ræðu þar sem hann var harðorður gagnvart aðgerðum sérsambandanna sem hafa sett marga rússneska íþróttamenn í bann í aðdraganda Ólympíuleikanna í Ríó. 27. júlí 2016 13:45 Efimova svarar fyrir sig: Lygar í blöðunum Rússneska sundkonan Yulia Efimova er orðinn ákveðinn holdgervingur rússneska lyfjasvindlsins. 10. ágúst 2016 22:30 Einn Rússi fær að taka þátt í frjálsíþróttakeppninni Það er nú orðið ljóst að einn rússneskur íþróttamaður verður með í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna þó svo alþjóða frjálsíþróttasambandið hafi sett alla rússneska frjálsíþróttamenn í bann frá leikunum. 15. ágúst 2016 10:00 Ekkert rússneskt frjálsíþróttafólk á ÓL Alþjóðaíþróttadómstólinn stóð með Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu og henti áfrýjun Rússa út af borðinu. 21. júlí 2016 09:45 Fötluðum rússneskum íþróttamönnum bannað að keppa í Ríó Fötluðum rússneskum keppendum hefur verið bannað að keppa á Ólympíuleikum fatlaða í Ríó í sumar í kjölfar dópskandals. 7. ágúst 2016 15:35 Sharapova ætlar að spila aftur eftir lyfjabannið Mun taka þátt í móti í Stuttgart í apríl næstkomandi. 10. janúar 2017 13:00 Það er hægt að vinna án þess að svindla Úrslitasundið sem Hrafnhildur Lúthersdóttir tók þátt í var á allra vörum í nótt. Þar mætti nefnilega hin óvinsæla rússneska sundkona Yulia Efimova. 9. ágúst 2016 10:00 Mest lesið Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Holland lenti undir en varamaðurinn Wout Weghorst kom til bjargar Fótbolti Ógnaði lögreglu með öxi stuttu frá stuðningsmannasvæði Hollendinga Fótbolti Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Bellingham skoraði eina markið í sigri Englands gegn Serbíu Fótbolti Ljóðræn endurkoma Eriksen en Slóvenar unnu sig til baka og sóttu stig Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Fleiri fréttir Mcllroy missti sigur úr greipum sér og DeChambeau vann opna bandaríska Vonarstjarna Bayern München framlengir við félagið Barcelona tók titlafernu og fór taplaust í gegnum tímabilið Bellingham skoraði eina markið í sigri Englands gegn Serbíu Ísold stórbætti persónulegt met og varð Norðurlandameistari „Ég veit ekki alveg hvernig það gerðist en ég var glöð að sjá boltann syngja í netinu“ „Auðvitað ekkert ánægður að fá bara eitt stig en þetta var frábær leikur“ Íslandsmeistararnir unnu öruggt gegn nýliðunum Ljóðræn endurkoma Eriksen en Slóvenar unnu sig til baka og sóttu stig Tindastóll-Víkingur 1-1 | Jafntefli niðurstaðan fyrir norðan eftir spennandi lokamínútur Nablinn slakur í Boston sólinni eftir slæman skell í spilavítinu „Vilja öll lið verða fyrsta liðið til að taka af okkur stig“ „Vitum að Agla er markagráðug en ég held hún hafi ekki verið að reyna þetta“ „Ég virðist ekkert vera að reyna að skora þessa dagana“ Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-0 | Toppliðið keyrði yfir botnliðið í seinni hálfleik Hlín skoraði en klikkaði svo úr víti og Rosengard er enn með fullt hús stiga Holland lenti undir en varamaðurinn Wout Weghorst kom til bjargar Segir Ronaldinho hafa beðið um miða á leiki Brasilíu Nú sé tækifæri til að vinna EM Ógnaði lögreglu með öxi stuttu frá stuðningsmannasvæði Hollendinga Neituðu launahækkun til að tryggja kvennalandsliðinu sömu laun Segir England ekki eiga möguleika með Trent á miðjunni Líkir Mbappé við Ninja-skjaldböku Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjá meira
Rússneskur Ólympíumeistari missir gullið sitt Tatyana Lysenko á yfir höfði sér lífstíðarbann frá frjálsíþróttum eftir að falla á lyfjaprófi öðru sinni. 12. október 2016 11:00
Rússar enn úti í kuldanum Alþjóða frjálsíþróttasambandið, IAAF, hefur ákveðið að framlengja bann Rússa frá alþjóðakeppnum í frjálsum íþróttum. 2. desember 2016 09:00
Putin: Ólympíugull ekki eins merkilegt afrek þegar það vantar Rússana Vladimir Putin, forseti Rússlands, hitti Ólympíulið Rússa í dag og hélt um leið ræðu þar sem hann var harðorður gagnvart aðgerðum sérsambandanna sem hafa sett marga rússneska íþróttamenn í bann í aðdraganda Ólympíuleikanna í Ríó. 27. júlí 2016 13:45
Efimova svarar fyrir sig: Lygar í blöðunum Rússneska sundkonan Yulia Efimova er orðinn ákveðinn holdgervingur rússneska lyfjasvindlsins. 10. ágúst 2016 22:30
Einn Rússi fær að taka þátt í frjálsíþróttakeppninni Það er nú orðið ljóst að einn rússneskur íþróttamaður verður með í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna þó svo alþjóða frjálsíþróttasambandið hafi sett alla rússneska frjálsíþróttamenn í bann frá leikunum. 15. ágúst 2016 10:00
Ekkert rússneskt frjálsíþróttafólk á ÓL Alþjóðaíþróttadómstólinn stóð með Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu og henti áfrýjun Rússa út af borðinu. 21. júlí 2016 09:45
Fötluðum rússneskum íþróttamönnum bannað að keppa í Ríó Fötluðum rússneskum keppendum hefur verið bannað að keppa á Ólympíuleikum fatlaða í Ríó í sumar í kjölfar dópskandals. 7. ágúst 2016 15:35
Sharapova ætlar að spila aftur eftir lyfjabannið Mun taka þátt í móti í Stuttgart í apríl næstkomandi. 10. janúar 2017 13:00
Það er hægt að vinna án þess að svindla Úrslitasundið sem Hrafnhildur Lúthersdóttir tók þátt í var á allra vörum í nótt. Þar mætti nefnilega hin óvinsæla rússneska sundkona Yulia Efimova. 9. ágúst 2016 10:00