Hafna norsku leiðinni Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. júní 2017 07:00 Hagdeild Íbúðalánasjóðs telur að takmörkun á lánshlutfalli af hálfu stjórnvalda geti komið í veg fyrir frekari ofhitnun íbúðamarkaðarins. Vísir/Anton Brink
Ólíklegt er að skert aðgengi að lánsfé geti slegið á hækkun íbúðaverðs hér á landi. Verðhækkanir á markaðinum hafa enda ekki verið drifnar áfram af skuldsetningu, heldur skorti á íbúðum. Þetta er mat hagfræðinga sem Fréttablaðið ræddi við. Hagdeild Íbúðalánasjóðs benti í lok síðasta mánaðar á að verulega hefði dregið úr verðhækkunum í Noregi eftir að þarlend stjórnvöld lækkuðu lánshlutfall á íbúðalánum vegna kaupa á annarri íbúð. Var vísað til „norsku leiðarinnar“ í þessu sambandi. Telur hagdeildin að reynsla Norðmanna sýni að aukin eiginfjárkrafa til þeirra sem eiga fleiri en eina fasteign geti borið árangur á svæðum þar sem framboðsskortur ríkir. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, bendir á að staðan á norskum fasteignamarkaði sé allt önnur en hér á landi. „Skuldsetning norskra heimila er mjög mikil og í raun farin að ógna fjármálalegum stöðugleika í landinu. Hér er staðan önnur, þar sem verðhækkanir hafa ekki verið drifnar áfram af aukinni skuldsetningu. Fremur hafa heimili verið að greiða niður skuldir.“Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.Mynd/SAÁstæðan fyrir hækkandi fasteignaverði sé fyrst og fremst sú að ekki hafi verið byggt nægilega mikið til að mæta lýðfræðilegri þörf. „Það er annar og mun alvarlegri vandi en að Íslendingar séu að kaupa fleiri en eina fasteign,“ segir Ásdís. „Ef stjórnvöld ætla að grípa til svona íþyngjandi aðgerða þarf að liggja fyrir mjög góður rökstuðningur. Hvað eru margir sem eiga tvær eða fleiri eignir? Er það algengt? Þessi tölfræði þyrfti að liggja fyrir. Mér finnst það ekki alveg gefið.“ Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur hjá Reykjavík Economics, segir erfitt fyrir stjórnvöld að beita stýritækjum sem þessum þegar eins mikill skortur er á íbúðum á viðráðanlegu verði og raunin er nú. Alls óvíst sé hvort þau virki sem skyldi við slíkar aðstæður. Í nýlegri skýrslu Reykjavík Economics um íbúðamarkaðinn er bent á að Seðlabanki Íslands geti vissulega haft áhrif á verðþróun á markaðinum með beitingu stýritækja. Stjórnvöld verði að stíga varlega til jarðar í þessum efnum. Æskilegra væri ef lánastofnanir sýndu frumkvæði í að sjálfregluvæða starfsemi sína. Ari Skúlason, hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, segir reyndina væntanlega þá að ekki séu að jafnaði fleiri en eitt íbúðalán á mann eða fjölskyldu, að minnsta kosti hjá sömu fjármálastofnun. „Ef menn eru að sanka að sér íbúðum má ætla að þeir hafi félag um slíkt og séu því komnir út í atvinnurekstur. Venjuleg íbúðalán eru ekki í boði fyrir félög. Án þess að ég þekki það finnst mér því mjög líklegt að fjármagnskostnaður við öflun fleiri en einnar íbúðar sé orðinn mun meiri en við öflun fyrstu íbúðar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira