Afar veikar forsendur til málshöfðunar Kristinn Ingi Jónsson skrifar 3. júní 2017 07:00 Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir forsendur aflandskrónueigenda til málshöfðunar veikar. vísir/vilhelm
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra telur forsendur þeirra fjárfesta sem tóku þátt í aflandskrónuútboði Seðlabankans síðasta sumar til þess að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu afar veikar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Björns Vals Gíslasonar, varaþingmanns VG. Aflandskrónueigendur skiptu krónum í erlendan gjaldeyri á genginu 190 krónur á evru í útboðinu. Í mars var greint frá því að Seðlabankinn hefði samið við þá eigendur aflandskróna sem kusu ekki að taka þátt í útboðinu um kaup á krónueignum þeirra á genginu 137,5 krónur á evru eða á 37 prósent betri kjörum. Ráðherra tekur fram að þátttaka í aflandskrónuútboðinu hafi verið valfrjáls. „Þessir valkostir og fyrirsjáanleiki í málinu gera að verkum að afar veikar forsendur eru til að höfða mál til greiðslu bóta vegna þess sem síðar var gert eða sagt í afnámsferlinu, enda hefur aldrei legið fyrir nein staðfesting á því að þeir aflandskrónueigendur sem ekki tóku þátt í útboðinu í júní 2016 myndu síðar í afnámsferlinu verða leystir undan sínum takmörkunum á verri kjörum en þeim sem boðin voru sumarið 2016.“ Þá er tekið fram að verðið í útboðinu í júní 2016 hafi miðast við að gjaldeyrisforði Seðlabankans dygði til að kaupa allar útistandandi aflandskrónueignir án þess að forðinn færi niður fyrir 150% af svokölluðu RAM-viðmiði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ráðherra bendir á að ef aflandskrónurnar hefðu verið keyptar á genginu 165 krónur gagnvart evru, eins og Björn Valur spurði um, hefði forðinn farið niður fyrir viðmiðið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira