Er sjálf farfugl sem fer milli heimshluta Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. nóvember 2017 11:15 Rán er með aðsetur og teiknistofu í bílskúrnum hjá mömmu sinni. Svo teiknar hún úti um víða veröld. VísirEyþór Árnason
Fuglar er fyndin og fræðandi fjölskyldubók. Hún er eiginlega mannlífssögur um fugla. Við sögu koma allir íslensku varpfuglarnir og það er sagt frá þeim á spaugilegan hátt, þó er ekki farið með fleipur.“ Þannig byrjar Rán Flygenring teiknari að lýsa bókinni Fuglar sem hún og Svarfdælingurinn Hjörleifur Hjartarson hafa skapað saman, hún myndirnar, hann textann. „Hjörleifur var verkefnastjóri við Náttúrusetur á Húsabakka í Svarfaðardal í nokkur ár og setti þar meðal annars upp fuglasýningu, enda Húsabakki staðsettur í fuglafriðland. Náttúrusetrið og fuglasýningin urðu heimilislaus þegar sveitarfélagið seldi húsið fyrir fáum árum en mikið af efninu lifir í bókinni okkar. Sýningin var grunnurinn að henni – eggið sem við unguðum út. Þar er sagt frá því hvar fuglarnir lifa, hátterni þeirra lýst almennt en líka fjallað um hvar þeir koma fyrir í þjóðsögum og hindurvitnum. Svo eru uppskriftir og allskonar litlar sögur. Skemmtileg lesning fyrir fólk á öllum aldri.“ Rán segir teikningar hennar gerðar með það í huga að draga fram einkenni hvers fugls og ýkja þau í stað þess að vera mjög fræðileg. „Þarna er stelkurinn með sínar rauðu og rosalöngu lappir og brandöndin sem finnur sér drasl og dót til að verpa undir,“ nefnir hún sem dæmi. Hún segir bókina Fugla í meðalstóru broti en þó þannig að hægt sé að fara með hana í ferðalög. „Hún er mjúk og opnast almennilega og maður getur hæglega tekið hana með sér í fuglaskoðunarleiðangra.“ Sjálf kveðst Rán vera farfugl sem fer á óskipulögðum tímum milli heimshluta. Maðurinn hennar er kvikmyndatökumaðurinn Sebastian Ziegler, sá sem tók myndina Vopnafjörður sem var frumsýnd nýlega og þau eiga soninn Felix sem er tíu mánaða. „Ég hef verið á flakki í nokkur ár, fyrst með eiginmanninum og nú þeim feðgum. Er akkúrat núna á landinu en á leiðinn aftur út um helgina og er svolítið fram og til baka og hér og þar. Vinnan leyfir mér það. Ég get teiknað hvar sem er, þess vegna í flugvélum. Ég held að Fuglabókin hafi verið teiknuð í fjórum löndum.“ Núna er Rán að fara til Frakklands. „Við búum nokkra mánuði í senn í hverju landi og erum svo reglulega hér heima á milli.“
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“