Vilja herða aðgerðir gegn kennitöluflakki Sæunn Gísladóttir skrifar 20. júní 2017 15:47 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, kynntu sameiginlegar tillögur SA og ASÍ í dag. Mynd/SA
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands kynntu í dag sameiginlegar tillögur sem er ætlað að berjast gegn kennitöluflakki. Ætla má að tjón samfélagsins vegna kennitöluflakks hlaupi á milljörðum króna á hverju ári segir í tilkynningu. Kennitöluflakk er að mati SA og ASÍ meinsemd í íslensku samfélagi sem er hægt að lágmarka með breytingu laga í samræmi við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Félögin leggja til að hægt verði að banna þeim sem verða uppvísir að kennitöluflakki að eiga og reka hlutafélög og einkahlutafélög í allt að þrjú ár. Kennitöluflakk felur í sér að félag hættir starfsemi eftir gjaldþrot en rekstur þess heldur áfram í gegnum annað félag með nýrri kennitölu til að komast undan einhverjum eða öllum lagalegum skuldbindingum félagsins, sem sagt greiðslu skatta og opinberra gjalda, lífeyris- og launagreiðslum. Lagt er til að Ríkisskattstjóra verði veitt heimild til að úrskurða kennitöluflakkara í svokallað atvinnurekstrarbann að fengnum úrskurði dómstóla. Bannið myndi ekki einungis ná til skráðra stjórnenda heldur einnig til svokallaðra skuggastjórnanda. Skilyrði atvinnurekstrarbanns eru óverjandi viðskiptahættir eða rökstuddur grunur um refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur. Það er til mikils að vinna en að mati félaganna liggur fyrir að fjárfesting í baráttu gegn kennitöluflakki skilar sér margalt til baka. Tjónið lendir á fyrirtækjum, ríkissjóði, stéttarfélögum, lífeyrissjóðum, launafólki og neytendum.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira