Legóþraut í inntökuprófi nemenda hjá BL Finnur Thorlacius skrifar 14. desember 2017 11:10 Legoþrautin útskýrð fyrir verðandi bifvélavirkjum.
Nýlega þreyttu ellefu áhugasamir verðandi bifvélavirkjar, sem nú stunda iðnnám í Borgarholtsskóla og sótt hafa um starfsnám hjá BL, inntökupróf hjá fyrirtækinu. Prófið var í formi skemmtilegrar en krefjandi Legoþrautar þar sem nemendur þurftu að leysa ýmis sérhönnuð verkefni fyrir bifvélavirkja. Verkefnið var sett saman fyrir BL með aðstoð Legosérfræðings þar sem markmiðið var að sýna nemendum fram á nauðsyn þess að hugur og hönd vinni sem best saman við lausn flókinna viðfangsefna. Fjórum nemendanna hefur þegar verið boðinn starfssamningur hjá fyrirtækinu. BL heldur árlega fjórar starfskynningar fyrir nemendur grunnskólanna í Reykjavík í samráði við Tómstunda- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Hlutverk kynninganna er að kynna nemendum annars vegar þá miklu breytingu sem starfsumhverfið hefur tekið samfara þeirri tæknibyltingu sem orðið hefur í greininni og hins vegar þá möguleika sem BL getur boðið verðandi bifvélavirkjum, bílasmiðum og bílamálurum með spennandi starfsnámi hjá fyrirtækinu. BL hefur langa reynslu á þessu sviði og býður árlega allt að tíu nemendum vinnustaðarsamning og á þessu ári einnig í fyrsta sinn fjárhagsstuðning meðan á samningnum stendur. Fyrir nemendur sem fá samning hjá BL greiðir fyrirtækið skólagjöld auk þess sem þeir ganga að vísu sumarstafi hjá BL. Á námstímanum úthlutar BL nemendum meistara í viðkomandi iðngrein sem sinnir reglulegum samskiptum við þá, foreldra þeirra eða kennara eftir atvikum og undirbýr þá að lokum undir töku sveinsprófsins. Iðnú útvegar nemendunum öll námsgögn þeim að kostnaðarlausu. Í febrúar verður næsta grunnskólakynning haldin hjá BL og haustið 2018 fer næsta inntökupróf fram fyrir nemendur í bílgreinum í Borgarholtsskóla sem sótt hafa um námssamning hjá BL. Sjá má lítið myndskeið hér að neðan um þetta skemmtilega framtak BL og Borgarholtsskóla.Unnið að lausninni.
Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent