Fjórðungi meiri viðskipti en á sama tíma í fyrra Sæunn Gísladóttir skrifar 4. júlí 2017 07:00 Kauphöll Íslands. Fréttablaðið/GVA
Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands námu 367,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Um er að ræða 27 prósenta aukningu milli ára en á sama tímabili árið 2016 námu heildarviðskipti 289,6 milljörðum króna. Á fyrstu sex mánuðum ársins hækkaði gengi úrvalsvísitölunnar um þrjú prósent. „Ég held að ef eitthvað er, þá sé þetta meira en við áttum von á, miðað við nýskráningar,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar. „Þetta er umtalsvert meira en skýrist af nýjum félögum á markaði. Þetta er aukin virkni viðskipta. Ég held að það skipti töluverðu máli þarna aukinn áhugi erlendra aðila. Svo hefur verið gerjun í sumum geirum, nærtækt í olíu- og smásölugeiranum og fasteignamarkaðurinn á fullri ferð.“Magnús Harðarson.Í júnímánuði voru viðskipti mest með bréf Haga, Marels, N1 og Icelandair Group. Í heildina hafa viðskipti verið mest með þau félög auk Reita á árinu. Magnús segir þróun skuldabréfamarkaðarins ekki ánægjulega. „Þar er eiginlega erlendum fjárfestum haldið frá markaðnum. Það hefur sett mjög mark sitt á veltuna ekki bara í ár heldur líka í fyrra. Veltan á dag er núna og síðustu misseri um fimm milljarðar en var fyrir nokkrum árum átta milljarðar. Þetta góða efnahagsástand og aukni áhugi á Íslandi er ekki að sýna sig á skuldabréfamarkaðnum einfaldlega vegna bindingarskyldunnar.“ Magnús segist hafa áhyggjur af hvað bein þátttaka almennings er lítil en heilt yfir hafi þetta verið góður fyrri árshelmingur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira