Stjörnukonur áfram í stuði en enduðu 10 á móti 11 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2017 21:09 Katrín Ásbjörnsdóttir og Donnu Key Henry skoruðu mörk Stjörnuliðsins í Kaplakrika í kvöld. Vísir/Eyþór
Stjarnan minnkaði forskot Þór/KA á toppi Pepsi-deildar kvenna í tvö stig í kvöld eftir 3-1 sigur á FH í Kaplakrika. Öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum. Katrín Ásbjörnsdóttir, markahæsti leikmaður Pepsi-deildar kvenna, skoraði tvö mörk í leiknum í kvöld og er þar með kominn með átta mörk í sumar. Hún hefur skorað í öllum sex leikjum Stjörnuliðsins síðan að hún tók fyrir fyrirliðabandinu. Stjörnukonur hafa þar með skorað 18 mörk í fyrstu sex leikjum sínum eða 3,0 mörk að meðaltali og það þrátt fyrir að markadrottning liðsins, Harpa Þorsteinsdóttir, sér enn í barnseignarfríi. Stjörnuliðið hefur nú unnið þrjá síðustu leiki sína með markatölunni 10-3. Katrín Ásbjörnsdóttir kom Stjörnunni í 1-0 á 29. mínútu með skalla af stuttu færi en Caroline Murray jafnaði fyrir FH aðeins tveimur mínútum síðar eftir sendingu frá Helena Ósk Hálfdánardóttur. Það var allt að gerast á þessum mínútum því Donnu Key Henry fiskaði víti á 33. mínútu og Katrín Ásbjörnsdóttir kom Stjörnunni aftur yfir. Staðan varð síðan orðin 3-1 á 41. mínútu þegar Donna Key Henry skoraði eftir stungusendingu frá Öglu Maríu Albertsdóttur. Stjörnukonur enduðu leikinn tíu á móti ellefu eftir að Ana Victoria Cate fékk beint rautt spjald á 81. mínútu. Cate verður því í leikbanni í toppslagnum á móti Þór/KA á mánudagskvöldið. FH-liðið vann þrjá leiki í röð í upphafi móts og hafði ekki byrjað betur í fjóra áratugi en Hafnarfjarðarliðið hefur nú tapað tveimur síðustu leikjum sínum ÍBV og Stjörnunni. Upplýsingar um markaskor og gang leiksins eru fengnar frá fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Þroskandi að vera fyrirliði Katrín Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, hefur byrjað tímabilið frábærlega og er markahæst í Pepsi-deild kvenna með sex mörk. Katrín er laus við meiðsli og setur stefnuna á að komast í íslenska EM-hópinn. 25. maí 2017 06:00 Sandra María með fyrsta markið sitt og Þór/KA vann sjötta leikinn í röð Þór/KA náði aftur þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-1 sigur á ÍBV á Akureyri í kvöld. Þetta er sjötti sigur Þór/KA liðsins í sex leikjum. 25. maí 2017 15:53 Margrét Lára með „Roger Milla“ mark og Valskonur upp í efri hlutann eftir stórsigur Valskonur eru eitthvað að rétta út kútnum eftir erfiða byrjun í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í sumar. 25. maí 2017 21:03 Mest lesið Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Holland lenti undir en varamaðurinn Wout Weghorst kom til bjargar Fótbolti Ógnaði lögreglu með öxi stuttu frá stuðningsmannasvæði Hollendinga Fótbolti Bellingham skoraði eina markið í sigri Englands gegn Serbíu Fótbolti Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Ljóðræn endurkoma Eriksen en Slóvenar unnu sig til baka og sóttu stig Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit ekki alveg hvernig það gerðist en ég var glöð að sjá boltann syngja í netinu“ „Auðvitað ekkert ánægður að fá bara eitt stig en þetta var frábær leikur“ Íslandsmeistararnir unnu öruggt gegn nýliðunum Tindastóll-Víkingur 1-1 | Jafntefli niðurstaðan fyrir norðan eftir spennandi lokamínútur Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-0 | Toppliðið keyrði yfir botnliðið í seinni hálfleik Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Frábær umgjörð hjá kvennaliði Fylkis Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Arnar Grétarsson fer á fornar slóðir og bikarmeistararnir fá Stjörnuna „Einn sá besti sem KA hefur haft í sögunni” Njarðvíkingar tylla sér á topp Lengjudeildarinnar Markahæstur í sögu KA með hundrað mörk: „ Vonandi fer ég í 150” Leik lokið: KA - Fram 3-0 | KA í undanúrslit eftir hundraðasta mark Hallgríms Mar Uppgjörið, myndir og viðtöl: Víkingur - Fylkir 3-1 | Víkingur hreinlega kann ekki að detta úr bikarnum Dreymir um að dæma Evrópu- eða landsleiki Breiðablik og Valur með elstu liðin í Bestu deild karla „Ég er ekki stoltur af þessu“ Uppgjör: Þór Ak. - Stjarnan 0-1 | Róbert Frosti dró Stjörnuna í undanúrslit Hjartnæm stund í Árbænum: Gestirnir gáfu sektarsjóðinn er Fylkismenn minntust fallins félaga Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Keflavík 5-2 | Blikar í undanúrslit „Hefði átt að setja þrjú þannig ég er bara ósátt með það“ „Við tökum vel á móti öllum sem vilja gera sér ferð norður“ „Ef þú skorar ekki þá áttu ekki skilið að vinna“ Dæmdur í bann fyrir að fleygja „fullum vatnsbrúsa í smettið á trommara“ Leik lokið: FH - Þór/KA 0-1 | Sandra María skoraði strax og tryggði sigur Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur | Valskonur í undanúrslit eftir sex marka sigur Áfall fyrir botnlið Þróttar Sjá meira
Þroskandi að vera fyrirliði Katrín Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, hefur byrjað tímabilið frábærlega og er markahæst í Pepsi-deild kvenna með sex mörk. Katrín er laus við meiðsli og setur stefnuna á að komast í íslenska EM-hópinn. 25. maí 2017 06:00
Sandra María með fyrsta markið sitt og Þór/KA vann sjötta leikinn í röð Þór/KA náði aftur þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-1 sigur á ÍBV á Akureyri í kvöld. Þetta er sjötti sigur Þór/KA liðsins í sex leikjum. 25. maí 2017 15:53
Margrét Lára með „Roger Milla“ mark og Valskonur upp í efri hlutann eftir stórsigur Valskonur eru eitthvað að rétta út kútnum eftir erfiða byrjun í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í sumar. 25. maí 2017 21:03
Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Arnar Grétarsson fer á fornar slóðir og bikarmeistararnir fá Stjörnuna
Uppgjörið, myndir og viðtöl: Víkingur - Fylkir 3-1 | Víkingur hreinlega kann ekki að detta úr bikarnum