Húsmæðraorlofið ekki ætlað í góðgerðarmálin Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. maí 2017 07:00 Líkn hefur í heilt ár reynt að innheimta greiðslur frá Vestmannaeyjabæ til húsmæðraorlofs sem samkvæmt lögum er viss upphæð á hvern íbúa sveitarfélags. vísir/pjetur „
Samkvæmt lögum eru þetta orlofsgreiðslur til kvenna og þetta á að fara þangað, við eigum ekkert að úthluta þessu í neina aðra hluti,“ segir Edda Ólafsdóttir, formaður kvenfélagsins Líknar um þau tilmæli bæjarráðs Vestmannaeyja að félagið leggi húsmæðraorlofsgreiðslu frá bænum í góðgerðarmál. Líkn hefur í heilt ár reynt að innheimta greiðslur frá Vestmannaeyjabæ til húsmæðraorlofs sem samkvæmt lögum er viss upphæð á hvern íbúa sveitarfélags. Í fyrra var upphæðin 106 krónur á íbúa og átti þá bærinn að greiða alls 459 þúsund krónur. Með dráttarvöxtum var upphæðin komin í 603 þúsund krónur í vor. Eftir að hafa ítrekað neitað kröfunni samþykkti bæjarráð loks á þriðjudaginn að borga reikninginn er innheimtubréf barst frá lögmanni.Þorbjörg I. Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður.„Bæjarráð hefur áður lýst yfir fullum stuðningi við einróma ályktun kvennafundar bæjarstjórnar á kvenréttindadaginn 19. júní 2008 þess efnis að greiðsla húsmæðraorlofs væri ekki í anda jafnréttis. Sá stuðningur er óbreyttur,“ bókaði bæjarráðið sem vísaði síðan í gott samstarf við Líkn í góðgerðarmálum og samþykkti að hækka upphæðina en lét þó skilaboð fylgja. „Bæjarráði er afar annt um að hvergi beri skugga á það samstarf og samþykkir því að greiða Líkn 700 þúsund krónur og hvetur Líkn til að nýta upphæðina til góðgerðamála.“ Sem fyrr segir telur Edda, formaður Líknar, ekki rétt að nota féð á þann hátt sem bæjarráðið hvetji til. Hún kveðst heldur ekki sammála bæjarráði um að greiðsla húsmæðraorlofs sé ekki í anda jafnréttis. „Lögin eru í gildi ennþá og öll bæjarfélög eiga að greiða þetta. Þannig að það er mín skoðun að þetta eigi að vera áfram eins og það var þangað til annað kemur í ljós, eða lögum verður breytt,“ segir Edda. Frumvarp um afnám húsmæðraorlofs hefur á síðustu árum ítrekað verið lagt fram á Alþingi en aldrei verið afgreitt. Það var lögmannsstofa Þorbjargar I. Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Kvenréttindafélags Íslands, sem rak málið fyrir hönd Líknar. Þorbjörg bendir á að kærunefnd jafnréttismála hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að húsmæðraorlof brjóti ekki reglu um jafnrétti kynjanna. Þá megi hafa í huga að konur á Íslandi eigi að jafnaði mun minni lífeyrisréttindi en karlar. Fram hafi komið að það tæki konur minnst 65 ár í viðbót að ná sömu lífeyrisinneign og karlar. „Konur sem eru hættar störfum og eru 67 ára og eldri eiga mjög lítið brot af þeim lífeyrissjóðsinneignum sem sá aldurshópur á. Það eru þær konur sem eru mest að sækja í þessar orlofsnefndir og sækja þessar ferðir,“ segir Þorbjörg I. Jónsdóttir.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Bæjarráðið í Eyjum neitar að greiða orlof til húsmæðra Vestmannaeyjabær ætlar ekki að greiða orlof til húsmæðra. Bæjarráð samþykkti það á síðasta fundi sínum. Bæjarstjórinn segir það mynd brjóta í bága við jafnréttislög ef bærinn myndi borga húsmæðrum. 13. október 2016 07:00 Húsmæður úthvíldar eftir orlofsferðir á kostnað pirraðra Hvergerðinga Lög um framlag sveitarfélaga til húsmæðraorlofs felur í sér mismunun kynja segir bæjarráð Hveragerðis og gagnrýnir að fjárhagsleg staða þiggjenda sé ekki skoðuð. Húsmæður af Suðurlandi fóru í tvær ferðir í fyrra og komu sælar 1. júní 2016 07:00 Húsmæðraorlof er tímaskekkja ítreka Hvergerðingar Orlofsnefnd húsmæðra hefur sent Hveragerðisbæ reikning upp á tæplega 246 þúsund krónur sem á að vera framlag bæjarins til húsmæðraorlofs á þessu ári. Bæjarráðið fagnaði ekki reikningnum. 23. maí 2015 08:00 Mest lesið Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fleiri fréttir „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Sjá meira
Bæjarráðið í Eyjum neitar að greiða orlof til húsmæðra Vestmannaeyjabær ætlar ekki að greiða orlof til húsmæðra. Bæjarráð samþykkti það á síðasta fundi sínum. Bæjarstjórinn segir það mynd brjóta í bága við jafnréttislög ef bærinn myndi borga húsmæðrum. 13. október 2016 07:00
Húsmæður úthvíldar eftir orlofsferðir á kostnað pirraðra Hvergerðinga Lög um framlag sveitarfélaga til húsmæðraorlofs felur í sér mismunun kynja segir bæjarráð Hveragerðis og gagnrýnir að fjárhagsleg staða þiggjenda sé ekki skoðuð. Húsmæður af Suðurlandi fóru í tvær ferðir í fyrra og komu sælar 1. júní 2016 07:00
Húsmæðraorlof er tímaskekkja ítreka Hvergerðingar Orlofsnefnd húsmæðra hefur sent Hveragerðisbæ reikning upp á tæplega 246 þúsund krónur sem á að vera framlag bæjarins til húsmæðraorlofs á þessu ári. Bæjarráðið fagnaði ekki reikningnum. 23. maí 2015 08:00